Ertu ríkisborgari ríkis utan EES?
Dvalarleyfi fyrir ríkisborgara utan EES
Áætlaður meðalafgreiðslutími umsókna fyrir búsetuleyfi og dvalarleyfi er 90 dagar.
Umsóknir verða ekki teknar til flýtimeðferðar nema um óviðráðanlegar aðstæður sé að ræða.
Umsókn um fyrsta leyfi í samfelldri dvöl skal hafa verið samþykkt áður en útlendingur kemur til landsins og gildir einu þótt hann hafi áður dvalist í landinu. Þetta þýðir að ef útlendingur er á landinu þegar sótt er um dvalarleyfi í fysta sinn þarf hann að fara af landi brott. Undantekningar frá þessu eru:
- maki, samvistarmaki eða sambúðarmaki íslensks eða norræns ríkisborgara eða útlendings sem dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu samkvæmt búsetuleyfi eða dvalarleyfi.
- barn íslensks eða norræns ríkisborgara eða útlendings sem dvelst eða fær að dveljast löglega í landinu samkvæmt búsetuleyfi eða dvalarleyfi og barnið er yngra en 18 ára.
Með hugtakinu dvalarleyfi er átt við fyrsta útgefna leyfið í samfelldri dvöl. Dvalarleyfi er að jafnaði gefið út til eins árs í senn. Tilgangur útlendings með dvöl hér á landi skal vera í samræmi við það dvalarleyfi sem sótt er um.
Veldu flokk eftir því sem við á:
- Ertu að vinna hér á landi?/Ertu að koma til að vinna?
- Ertu að koma í heimsókn (eigi lengur en í þrjá mánuði)?
- Ertu að koma sem au-pair/vistráðning á Íslandi?
- Ertu að stunda nám á Íslandi?/Ertu að koma til að stunda nám?
- Ertu aðstandandi EES ríkisborgara?
- Ertu hér vegna fjölskyldusameiningar?/Ertu að koma til að sameinast fjölskyldu?
- Ertu að sækja um búsetuleyfi?

