Ertu ríkisborgari EES ríkis?
EES útlendingur og aðstandendur hans sem eru ríkisborgara ríkja utan EES
EES- útlendingur má dvelja og starfa hér á landi án sérstaks leyfis í allt að þrjá mánuði frá komu til landsins eða allt að sex mánuði ef hann er í atvinnuleit. Ef viðkomandi dvelst lengur í landinu þá skal hann skrá rétt sinn til dvalar hjá þjóðskrá (Á ekki við um launþega frá Rúmeníu og Búlgaríu, en þeir þurfa að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi hjá Útlendingastofnun). Dvöl í öðru norrænu ríki er ekki dregin frá dvalartímanum.
Ríkisborgarar ríkja utan EES sem eru aðstandendur EES-ríkisborgara skulu sækja um dvalarskírteini hjá Útlendingastofnun innan þriggja mánaða frá komu til landsins.
Hvernig skal sækja um dvalarskírteini?

