ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Breytingar á lögum nr. 96/2002 um útlendinga taka gildi 1. ágúst n.k.
Þann 1. ágúst n.k. taka gildi breytingar á lögum nr. 96/2002 um útlendinga. Helstu breytingar er þær að dvalarleyfi til EES- eða EFTA útlendinga eru afnumin en i stað ríkisborgurum EES/EFTA gert skylt að skrá dvöl sína hér á landi hjá Þjóðskrá. Ríkisborgarar ríkja utan EES sem eru aðstandendur EES-ríkisborgara þurfa eftir sem áður að sækja um dvalarskírteini hjá Útlendingastofnun.
Breytingar verða einnig á dvalarleyfum tengdum atvinnuþátttöku. Eftir breytingu á lögum eru dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku skipt í þrjá flokka, dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, dvalarleyfi fyrir íþróttafólk og dvalarleyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli.
Þeir útlendingar sem fengu veitt dvalar- og atvinnuleyfi án takmarkana (B-leyfi) samkvæmt eldri lögum um útlendinga nr. 96/2002 halda réttindum sínum og halda áfram að telja upp í búsetuleyfi. Þeir eiga rétt á fjölskyldusameiningu.

