Vegna tilkynningar á vef Alþingis um tafir á veitingu ríkisborgararéttar með lögum vill Útlendingastofnun koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri.
Þann 1. júní síðastliðinn tilkynnti dómsmálaráðuneytið í bréfi til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis að verklagi Útlendingastofnunar við meðferð umsókna um íslenskan ríkisborgararétt til Alþingis yrði breytt frá og með haustþingi 2021 í því skyni að auka jafnræði umsækjenda og stytta afgreiðslutíma.
Í bréfinu er vísað til samskipta ráðuneytisins, Útlendingastofnunar og allsherjar- og menntamálanefndar allt aftur til ársins 2018 um nauðsyn þess að breyta verklagi við meðferð umsókna um ríkisborgararétt til Alþingis. Jafnframt er þar vísað til bréfs Umboðsmanns Alþingis til dómsmálaráðherra frá því í janúar 2021 varðandi tafir á afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt.
Í samræmi við fyrirmæli dómsmálaráðuneytisins voru umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt til Alþingis ekki teknar fram fyrir aðrar umsóknir um ríkisborgararétt og er nauðsynlegri forvinnslu þeirra því ekki lokið.