• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Stefnur Útlendingastofnunar
      • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
      • Launastefna
      • Jafnlaunastefna
      • Tungumálastefna
      • Persónuverndarstefna
    • Skipurit
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
      • Dvalarleyfi
      • Alþjóðleg vernd
      • Vegabréfsáritanir
      • Íslenskur ríkisborgararéttur
      • Túlkanir og þýðingar
      • Upplýsingar fyrir ríkisborgara Úkraínu
    • Hafa samband
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Tímabókanir
  • Hafa samband
  • Algengar spurningar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. Afturköllun dvalarleyfis

Afturköllun dvalarleyfis

Í ákveðnum tilvikum er heimilt að afturkalla dvalarleyfi og ótímabundið dvalarleyfi. Algengast er að afturköllun dvalarleyfis komi til þegar leyfshafi uppfyllir ekki lengur skilyrði dvalarleyfis, t.d. vegna skilnaðar að borði og sæng eða lögskilnaðar. Það skiptir máli fyrir réttarstöðu viðkomandi í framhaldi af ákvörðun um afturköllun á hvaða grundvelli afturköllunin er tekin. 

Helstu ástæður afturköllunar

Ferill afturköllunar

Afleiðingar afturköllunar

Kæra og frestun réttaráhrifa

Brottfall dvalarréttar 


Helstu ástæður afturköllunar

Útlendingastofnun er heimilt að afturkalla dvalarleyfi og ótímabundið dvalarleyfi í eftirfarandi tilvikum, sbr. 59. gr. útlendingalaga:

  • Leyfishafi hefur gegn betri vitund veitt rangar upplýsingar við umsókn og upplýsingarnar hefðu getað haft verulega þýðingu við leyfisveitingu.
  • Leyfishafi hefur við umsókn leynt atvikum sem hefðu getað haft verulega þýðingu við leyfisveitinguna.
  • Ekki er lengur fullnægt skilyrðum fyrir veitingu dvalarleyfis eða ótímabundins dvalarleyfis.
  • Eða það leiðir að öðru leyti af almennum stjórnsýslureglum.

Ferill afturköllunar

Útlendingastofnun tilkynnir leyfishafa um afturköllun dvalarleyfis. Í þeim tilvikum þar sem öruggt er að skilyrðum dvalarleyfis er ekki lengur fullnægt, t.d. við lögskilnað, fær leyfishafi tilkynningu um að leyfi hans hafi verið afturkallað.

Í öðrum tilvikum getur verið nauðsynlegt að leyfishafi fái tækifæri til að tjá sig um hugsanlega afturköllun áður en ákvörðun er tekin. Leyfishafa er þá send tilkynning um hugsanlega afturköllun og honum veitt færi á að tjá sig um efni máls eða sækja um nýtt dvalarleyfi innan tilskilins frests, sem yfirleitt er 15 dagar.

Að teknu tilliti til athugasemda leyfishafa, ákveði hann að tjá sig um máli, er ákvörðun tekin. 

Afleiðingar afturköllunar

Afturköllun hefur þau áhrif að dvalarleyfi sem þegar hefur verið veitt er dregið til baka og leyfishafi hefur ekki lengur heimild til dvalar á Íslandi.

Í þeim tilvikum þar sem afturköllun byggir á breyttum aðstæðum leyfishafa er honum veittur frestur, yfirleitt 15 dagar, til þess að sækja um dvalarleyfi á nýjum grundvelli. Hafi útlendingur hvorki sótt um dvalarleyfi að veittum fresti liðnum né kært ákvörðunina telst dvöl hans hér á landi ólögmæt. Nema útlendingur hafi heimild til dvalar hér á landi á grundvelli áritunarfrelsis., þá hefur hann heimild til dvalar þann tíma sem áritunarfrelsi gildir. Ólögmæt dvöl getur leitt til brottvísunar og endurkomubanns, sbr. 98. gr. útlendingalaga.

Eftir afturköllun leyfis á þeim grundvelli að rangar upplýsingar hafi verið gefnar eða atvikum leynt sem höfðu verulega þýðingu við útgáfu þess leyfis skal staða viðkomandi vera líkt og hann hafi aldrei fengið það leyfi útgefið og önnur leyfi byggð á sömu forsendum. Það þýðir að sæki viðkomandi aftur um dvalarleyfi er staða hans eins og um fyrsta dvalarleyfi sé að ræða. Viðkomandi gæti því þurft að yfirgefa landið, leggja fram öll gögn við nýja umsókn eins og krafist er við fyrstu umsókn um dvalarleyfi. Kæri leyfishafi ekki ákvörðunina telst dvöl hans hér á landi ólögmæt. Nema útlendingur hafi heimild til dvalar hér á landi á grundvelli áritunarfrelsis. Ólögmæt dvöl getur leitt til brottvísunar og endurkomubanns, sbr. 98. gr. útlendingalaga.

Kæra og frestun réttaráhrifa

Ákvörðun um afturköllun dvalarleyfis er kæranleg til kærunefndar útlendingamála. Kærufrestur er 15 dagar og frestar kæra réttaráhrifum ákvörðunar. Það þýðir að ef leyfishafi kærir ákvörðun um afturköllun dvalarleyfis verður réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar ekki framfylgt á meðan mál hans er til meðferðar hjá kærunefndinni. Staða hans verður þá eins og ákvörðun um afturköllun hafi ekki verið tekin og heldur leyfishafi þeirri stöðu þar til úrskurðað hefur verið í kærumálinu.

Leyfishafi á rétt á skipun talsmanns á kærustigi sbr. 3. mgr. 13. gr. útlendingalaga.

 

Brottfall dvalarréttar

Þegar útlendingur þarf ekki dvalarleyfi hér á landi samkvæmt eldri lögum um útlendinga hefur hann stöðuna ,,þarf ekki dvalarleyfi“ og fær hann útgefið kort sem staðfestir þann rétt.

Í sérstökum tilvikum getur grundvöllur réttar til dvalar brostið og þarf viðkomandi þá dvalarleyfi á Íslandi. Algengast er að slíkt gerist ef viðkomandi hefur verið í hjúskap eða sambúð með íslenskum ríkisborgara til nokkurra ára, en sambandi lýkur áður en viðkomandi fær ótímabundið dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt.

Við lögskilnað eða lok skráðrar sambúðar fellur framangreindur réttur sjálfkrafa niður. Útlendingastofnun sendir tilkynningu um brottfall dvalarréttar, leiðbeinir um möguleika á umsókn um dvalarleyfi og gefur ákveðinn frest til að leggja fram dvalarleyfisumsókn.

Þar sem brottfall dvalarréttar er ekki stjórnvaldsákvörðun er slík tilkynning ekki kæranleg.

Hafi útlendingur ekki sótt um dvalarleyfi að veittum fresti liðnum telst dvöl hans hér á landi ólögmæt. Nema útlendingur hafi heimild til dvalar hér á landi á grundvelli áritunarfrelsis. Ólögmæt dvöl getur leitt til brottvísunar og endurkomubanns, sbr. 98. gr. útlendingalaga.

  • Hverjir þurfa dvalarleyfi?
  • Ferill umsókna
    • Útgáfustaðir D-áritana
  • Afgreiðslutími og umsóknir í vinnslu
  • Langtímavegabréfsáritun
  • Langtímavegabréfsáritun fyrir fólk í fjarvinnu og aðstandendur þess
  • Fjölskyldusameining
  • - Maki eða sambúðarmaki
  • - Barn
  • - Foreldri 67 ára og eldri
  • - Foreldri barns yngra en 18 ára
  • Atvinnuleyfi
    • Flýtimeðferð
  • Nám
    • Endurnýjun og námsárangur
  • Vistráðning / au-pair
  • Vinnudvöl fyrir ungt fólk
  • Sjálfboðaliðar
  • Trúboðar
  • Lögmætur tilgangur
  • Sérstök tengsl við Ísland
  • Ríkisborgarar EES/EFTA og aðstandendur þeirra
    • EES og EFTA ríkin
  • Ótímabundið dvalarleyfi
  • Réttindi
  • Grunnskilyrði
  • Gagnakröfur
    • FBI sakavottorð
  • Heimild til dvalar
  • Synjun umsóknar um dvalarleyfi
  • Afturköllun dvalarleyfis
  • Algengar spurningar
  • Brottvísun og endurkomubann

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • New in Iceland
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd
  • Persónuverndarstefna

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til föstudaga 9 - 14

Símaþjónusta:
Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

444 0900

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | 444 0900 | utl@utl.is

Kt. 670269-6399 | Rkn. 0515-26-410424 

Jafnlaunavottun adalmerki 2020 2023 f ljosan grunn hrmonitor 2021