Hvaða umsóknir hafa verið teknar til vinnslu?
Afgreiðslutími umsókna um dvalarleyfi
Hvaða umsóknir hafa verið teknar til vinnslu?
Þegar umsókn hefur verið tekin til vinnslu þýðir það að hún sé komin til sérfræðings, sem kannar hvort umsækjandi uppfylli skilyrði umsóknar. Ef umsókn er ófullnægjandi eða ef gögn vantar fyrir vinnslu umsóknar, hefur stofnunin samband við umsækjanda eða umboðsmann hans. Í sumum tilfellum aflar Útlendingastofnun gagna til viðbótar þeim sem umsækjandi leggur fram, til dæmis hjá lögreglu- og/eða skattayfirvöldum. Af þeim sökum getur liðið einhver tími frá því að umsókn er tekin til vinnslu þar til Útlendingastofnun hefur samband við umsækjanda.
Verið er að taka til vinnslu umsóknir sem bárust stofnuninni í þeim mánuði sem er tiltekinn í töflunni hér að neðan. Umsóknir sem bárust síðar en í þeim mánuði sem tiltekinn er bíða þess að verða teknar til vinnslu.
Upplýsingarnar voru uppfærðar 10. júní 2022.
Tegundir umsókna |
Umsóknir um fyrstu leyfi |
Umsóknir um endurnýjanir |
Aðstandendur Íslendinga og EES-borgara |
janúar 2022 |
maí 2022 |
Atvinnuleyfi |
mars 2022 |
maí 2022 |
Aðstandendur atvinnuleyfishafa |
janúar 2022 | maí 2022 |
Dvalarleyfi vegna vistráðningar |
mars 2022 |
|
Ótímabundin dvalarleyfi |
febrúar 2022 |
- |
Aðstandendur ótímabundinna dvalarleyfishafa |
janúar 2022 |
maí 2022 |
Ríkisborgararéttur |
nóvember 2021 |
- |
Ef umsókn þín bíður þess að verða tekin til vinnslu, fást ekki frekari upplýsingar varðandi umsóknina í síma eða tölvupósti.
Námsmenn
Umsóknir um dvalarleyfi á grundvelli náms, sem berast með fullnægjandi gögnum innan frests, verða afgreiddar áður en skólahald hefst. Frestur til að sækja um dvalarleyfi vegna náms er 1. júní fyrir haustönn og 1. nóvember fyrir vorönn ár hvert.
Afgreiðslutími umsókna um dvalarleyfi
Umsækjandi um fyrsta dvalarleyfi þarf að gera ráð fyrir að afgreiðslutími geti verið nokkrir mánuðir.
Stærstur hluti umsókna um fyrsta dvalarleyfi er afgreiddur innan sex mánaða og stærstur hluti endurnýjana innan þriggja mánaða, sjá stöðu í töflu hér að ofan. Það getur þó tekið lengri tíma að afgreiða umsókn sem þarfnast frekari vinnslu til að unnt sé að meta hvort umsækjandi uppfylli skilyrði dvalarleyfis.
Afgreiðslutíminn getur lengst ef:
- umsókn hefur ekki verið fyllt út nægilega vel,
- kalla þarf eftir frekari gögnum,
- kalla þarf umsækjanda í viðtal eða
- umsækjandi hefur óskað eftir undanþágu frá skilyrðum dvalarleyfis.
Ef umsókn hefur ekki verið afgreidd innan tímaviðmiða er ekki sérstök ástæða til að hafa samband við Útlendingastofnun.
Stofnunin hefur samband við umsækjanda eða umboðsmann ef umsókn er ófullnægjandi eða ef frekari gögn vantar fyrir vinnslu umsóknar.