Hvað þarf að rannsaka

HVAÐ ÞARF AÐ RANNSAKA Í HÆLISMÁLUM?

Lögreglan skal leitast við að rannsaka ferðaleið umsækjanda og sannreyna hver viðkomandi er, þá aðallega ríkisfangið. Útlendingastofnun ber að rannsaka almennar aðstæður í upprunalandi viðkomandi umsækjanda og sannreyna aðstæður umsækjanda sjálfs í heimalandinu eins og unnt er.

Rannsókn hælismála miðar að því að meta hvort umsækjandi hefur rökstudda ástæðu til að óttast ofsóknir í heimalandi sínu og hvort forsendur séu til að veita honum stöðu flóttamanns. Þá ber Útlendingastofnun einnig að meta hvort umsækjandi, sé talið að skilyrði hælis séu ekki uppfyllt, hafi þörf fyrir annars konar vernd á grundvelli dvalarleyfis af mannúðarástæðum.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 segir: „ Flóttamaður samkvæmt lögunum telst vera útlendingur sem fellur undir ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 (flóttamannasamningsins), sbr. viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967.“

Í 2. tl. A-liðar 1. gr. flóttamannasamningsins kemur fram sú skilgreining að flóttamaður í skilningi samningsins eigi við hvern þann sem [...] af ástæðuríkum ótta við að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar í sérstökum félagsmálaflokkum eða stjórnmálaskoðana, og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta, færa sér í nyt vernd þess lands; eða þann sem er ríkifangslaus, og er utan þess lands, þar sem hann áður hafði reglulegt aðstetur, vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki, vegna slíks ótta, hverfa aftur þangað.

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.