Hvað gerist þegar sótt er um hæli

HVAÐ GERIST ÞEGAR SÓTT ER UM HÆLI Á ÍSLANDI?

Umsókn um hæli skal lögð fram hjá lögreglu. Lögregla tekur niður hælisskýrslu þar sem umsækjandi gerir grein fyrir persónuupplýsingum, ástæðu fyrir umsókn um hæli og ferðaleið. Að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu er umsækjanda komið til dvalar- og móttökustaðar. Þegar rannsókn lögreglu er lokið er hælisumsókn ásamt meðfylgjandi gögnum send til Útlendingastofnunar.

Útlendingastofnun kemur umsókn um hæli í viðeigandi málsmeðferð svo fljótt sem unnt er. Í þeim málum þar sem þörf er á frekari gagnaöflun er umsækjandi kallaður til útfyllingar persónuskýrslu og á síðari stigum málsmeðferðar mun viðkomandi boðaður í viðtal til Útlendingastofnunar. Þegar gagnaöflun er lokið og mál telst nægjanlega upplýst tekur stofnunin ákvörðun um hælisumsókn. Umsækjandi hefur heimild skv. lögum til að kæra ákvörðun stofnunarinnar til dómsmálaráðuneytis.

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.