Dublin II
Dublin II reglugerðin
Samkvæmt reglugerðinni á aðeins eitt ríki að bera ábyrgð á meðferð hælisumsóknar. Ef stjórnvald í öðru aðildarríki er kunnugt um umsækjanda skal umsókn hans t.d. ekki afgreidd á Íslandi. Þess í stað verður hælisleitandi sendur til þess lands sem ber ábyrgð á meðferð hælisumsóknar hans. Samkvæmt þessum skuldbindingum Íslands eru margir umsækjendur um hæli sendir brott af Íslandi til annarra aðildarríkja þar sem þeir fá beiðni sína um hæli tekna til meðferðar.
Möguleiki er á að umsækjanda um hæli verði vísað til næsta örugga þriðja lands, þar sem umsókn verður skoðuð. Umsækjandi getur verið sendur til þessa lands ef hann/hún hefur dvalið þar fyrir komu til Íslands. Öruggt þriðja ríki getur t.d. verið Sviss, Bandaríkin eða Kanada.

