110. gr.

110. gr. tilkynning

Tilkynningarskylda um útlending sem kemur til starfa hér á landi, skv. 110. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 53/2003

Tilkynningarskylda samkvæmt reglugerðarákvæðinu á eingöngu við ef þjónustusamningur er á milli íslensks fyrirtækis og erlends fyrirtækis.

Ef ríkisborgari EES- eða EFTA ríkis- eða útlendingur, sem hefur leyfi sem jafngildir óbundnu atvinnuleyfi í EES- eða EFTA-ríki, kemur til starfa hér á landi í þrjá mánuði eða skemur á vegum erlends fyrirtækis sem tekið hefur að sér verkefni fyrir íslenskt fyrirtæki skal hið innlenda fyrirtæki tilkynna Útlendingastofnun það. Tilkynning skal hafa borist Útlendingastofnun a.m.k. viku áður en vinnan hefst. 

Þjónustusamningur skal vera á milli hið íslenska fyrirtækis og þess erlenda.  Skilyrt er að samningurinn fylgi tilkynningu sem viðhengi. 

Tilkynning hefur ekki í för með sér ígildi dvalarleyfis fyrir útlending.  Dveljist útlendingur lengur en þrjá mánuði hér á landi þarf hann sjálfur að sækja um dvalarleyfi. 

Samkvæmt lögum skal hinn erlendi starfskraftur njóta launakjara samkvæmt íslenskum kjarasamningum. 

Allar tilkynningar eru sendar Vinnumálastofnun til umsagnar.

 

Tilkynninga hér.



 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.