Útlendingastofnun

Um Útlendingastofnun

Útlendingastofnun er ein af undirstofnunum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og starfar samkvæmt lögum nr. 96/2002 um útlendinga og einnig reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga. Útlendingalöggjöfin gildir um heimild útlendinga til að koma til landsins og dvelja hér á landi, en útlendingur telst hver sá sem ekki er íslenskur ríkisborgari samkvæmt lögum um íslenskan ríkisborgararétt.                                         

Umfangsmesti þátturinn í starfsemi Útlendingastofnunar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir allar umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku eða t.d. fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar, áritanir og umsóknir hælisleitenda. Þar fyrir utan sinnir Útlendingastofnun margvíslegum verkefnum á sviði útlendingamála og á þar af leiðandi mikið og gott samstarf við stofnanir á hinum ýmsu sviðum.  Helstu samstarfsaðilar Útlendingastofnunar eru: 

Dómsmálaráðuneytið:

Dómsmálaráðherra fer með yfirstjórn útlendingamála. Ráðuneytið setur þær reglur er Útlendingastofnun starfar eftir og gilda um heimild útlendinga til að koma til landsins og dveljast hér á landi.  Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru einnig kæranlegar til dómsmálaráðuneytisins.

Ríkislögreglustjóri:

Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra samræmir störf lögreglunnar í landinu við eftirlit með útlendingum og landamæragæslu. Alþjóðadeildin kemur með ýmsum hætti að málefnum hælisleitenda og útlendinga sem koma ólöglega til landsins. Hún rannsakar feril þeirra og reynir að bera kennsl á útlendinga með margs konar samskiptum við erlend yfirvöld og stofnanir. Alþjóðadeildin sér einnig um undirbúning og framkvæmd brottvísunar útlendinga af landinu.

Lögreglan:

Lögreglan kemur að útlendingamálum á ýmsan hátt, bæði að hælismálum og útlendingamálum almennt. Eitt mikilvægasta hlutverk lögreglunnar í útlendingamálum er að hafa eftirlit með því hvort útlendingar séu í lögmætri dvöl hér á landi.  Hún hefur eftirlit með því að útlendingar séu með dvalarleyfi, og einnig atvinnuleyfi þegar það á við.  Einnig sér lögreglan um landamæragæslu, skýrslutökur af hælisleitendum og frávísanir útlendinga.

Vinnumálastofnun:

Vinnumálastofnun hefur með höndum veitingu atvinnuleyfa fyrir útlendinga. Starfandi er samráðsnefnd Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar og er slík samvinna afar mikilvæg, þar sem Útlendingastofnun gefur út dvalarleyfi samkvæmt lögum um útlendinga og Vinnumálastofnun atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga.  Útlendingur getur ekki fengið útgefið atvinnuleyfi nema fyrir liggi dvalarleyfi frá Útlendingastofnun. Það leiðir af hlutarins eðli að þessi starfsemi er nátengd og því verður að telja mikilvægt að stofnanirnar eigi skipulagt og gott samstarf.

Utanríkisráðuneytið:

Íslensk sendiráð sjá um móttöku umsókna um vegabréf fyrir íslenska ríkisborgara sem búsettir erlendis. Einnig benda sendiráðin á ræðismenn Íslands sem taka við umsóknum fyrir vegabréf.  Utanríkisráðuneytið hefur einnig samvinnu við stofnunina vegna útgáfu dvalarleyfa fyrir starfsmenn varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli en stofnunin skráir alla þá starfsmenn í skráningarkerfi sitt. 

Alþjóðahús:

Eitt meginhlutverk Alþjóðahúss er að auðvelda aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi. Því hlutverki er sinnt, meðal annars með upplýsingagjöf, ráðgjöf, túlkaþjónustu og félagsstarfi.  Einnig býður Alþjóðahús m.a upp á ráðgjöf og aðstoð fyrir innflytjendur og aðstandendur þeirra og almennar upplýsingar um réttindi og skyldur í íslensku samfélagi.  Útlendingastofnun hefur í samvinnu við Alþjóðahús veitt upplýsingar um dvalarleyfi og réttindi útlendinga. 

Rauði krossinn:

Rauði krossinn kemur að málefnum útlendinga með ýmsum hætti og sinnir m.a. málsvarahlutverki og réttindagæslu fyrir hælisleitendur.  Einnig veitir Rauði krossinn þeim útlendingum er á þurfa að halda, aðstoð við að nálgast upplýsingar um rétt sinn og skyldur í íslensku þjóðfélagi, og þar með talið í samskiptum við Útlendingastofnun.

 



 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.