Vistráðning

Tímabundið dvalarleyfi vegna vistráðningar

Heimilt er að veita leyfi til að fá til sín útlending á aldrinum 18-25 ára í vist tímabundið á íslenskt heimili.

Athugið að umsókn verður ekki tekin til afgreiðslu fyrr en greitt hefur verið fyrir hana. Sjá nánar hér

Áætlaður afgreiðslutími umsókna fyrir dvalarleyfi er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist.

Umsókn um vistráðningu skal hafa verið samþykkt áður en útlendingur kemur til landsins. Þetta þýðir að ef útlendingur er á landinu þegar sótt er um dvalarleyfi í fyrsta sinn þarf hann að fara af landi brott.

Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis vegna vistráðningar eru:

  • Útlendingur uppfylli grunnskilyrði dvalarleyfis, þ.e. að framfærsla hans, sjúkratrygging og húsnæði sé trygg.
  • Útlendingur er ekki yngri en 18 ára eða eldri en 25 ára.
  • Undirritaður samningur um vistráðningu milli útlendings og vistfjölskyldu liggur fyrir.
  • Fæði og húsnæði útlendings er án endurgjalds.
  • Hinn vistráðni hefur sérherbergi
  • Vistfjölskylda greiðir heimflutning útlendings að vistráðningu lokinni.
  • Útlendingur fær nægan tíma til íslenskunáms og til að sinna áhugamálum.

Um er að ræða eins konar menningarskiptasamning sem hvorki fellur undir skilgreiningar um námsmenn né almenna starfsmenn. Ekki er gert ráð fyrir að útlendingur komi í framangreindum tilgangi til að dvelja á heimili ættmenna enda verður vart séð að með því væri tilganginum náð sem býr að baki slíkri dvöl.

Hámarkstími dvalarleyfis vegna vistráðningar er eitt ár og því er ekki hægt að framlengja.

Dvalarleyfi vegna vistráðningar getur ekki verið grundvöllur búsetuleyfis

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

Ef að eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.

  1. Umsókn um tímabundið dvalarleyfi vegna vistráðningar - vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  2. Ein passamynd (35mm-45mm)
  3. Ljósrit úr vegabréfi - Gildistími vegabréfs skal vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  4. Sakavottorð - Sakavottorð þarf að berast frá því ríki/ríkjum sem útlendingur hefur verið búsettur í síðastliðin fimm ár, í frumriti. Sakavottorð skal ekki vera eldra en 6 mánaða þegar það er lagt inn hjá stofnuninni.
  5. Sjúkratrygging - Trygging að lágmarki 2.000.000 ísl kr. skal lögð fram frá vátryggingafélagi með starfsleyfi hér á landi. Sjúkratryggingin þarf að vera i gildi í 6 mánuði.
  6. Umboð - Útlendingur veitir aðila hérlendis umboð til að sjá um mál hans hér á landi
  7. Skriflegur samningur milli aðila/ráðningarsamningur - fæst einungis hjá Útlendingastofnun, í frumriti.

Með umsókn skal fylgja staðfest frumrit vottorða eftir því sem við á. Útlendingastofnun gerir þær kröfur að með vottuðum frumritum erlendra vottorða, sem lögð eru fram með umsókn um dvalarleyfi, fylgi staðfesting á gildi vottorða. Um er að ræða annað hvort „apostille” vottun frá heimaríki eða tvöfalda staðfestingu frá utanríkisráðuneyti í heimaríki og sendiráði viðkomandi ríkis hér á landi eða næsta sendiráði (hafi viðkomandi ríki ekki sendiráð hér á landi). Hér undir falla m.a. sakavottorð, hjúskaparvottorð, fæðingarvottorð og önnur þau vottorð sem umsækjandi leggur fram með umsókn sinni um dvalarleyfi hér á landi. Útlendingastofnun krefst þess að öllum erlendum vottorðum sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, fylgi þýðing sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda.

Ef ástæða þykir áskilur Útlendingastofnun sér rétt á að óska eftir staðfestingu á gildi erlendra vottorða. Um er að ræða annað hvort „apostille” vottun frá heimaríki eða tvöfalda staðfestingu frá utanríkisráðuneyti í heimaríki og sendiráði viðkomandi ríkis hér á landi eða næsta sendiráði (hafi viðkomandi ríki ekki sendiráð hér á landi). Hér undir falla m.a. sakavottorð, hjúskaparvottorð, fæðingarvottorð og önnur þau vottorð sem umsækjandi leggur fram með umsókn sinni um dvalarleyfi hér á landi.

Nánari upplýsingar um apostille vottun er að finna á http://hcch.e.vision.nl

Ef ákvörðun um veitingu vistráðningar liggur fyrir þarf útlendingur að fá D-áritun í næsta sendiráði sem er í fyrirsvari fyrir Íslands hönd og sér um útgáfu D-áritana. Í umsókn skal tekið fram í hvaða sendiráð útlendingur hyggst fá afhenta vegabréfsáritun. Lista yfir sendiráð er hægt að nálgast á hér.

Eftir komu til landsins ber útlendingi að:

Að þeim skilyrðum uppfylltum er leyfið gefið út og dvalarleyfiskortið sent á heimilisfang viðkomandi. Upphaf dvalar miðast við útgáfudag dvalarleyfis.



 

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.