Námsmenn
Dvalarleyfi vegna námsdvalar
Athugið að umsókn verður ekki tekin til afgreiðslu fyrr en að greitt hefur verið fyrir hana. Sjá nánar hér
Áætlaður afgreiðslutími umsókna fyrir dvalarleyfi er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist.
Fyrir haustönn þarf umsókn, auk fylgigagna, að hafa borist stofnuninni eigi síðar en 15. júlí hvers árs.
Fyrir vorönn þarf umsókn, auk fylgigagna, að hafa borist stofnuninni eigi síðar en 15. nóvember hvers árs.
Námsmannaleyfi er ætlað útlendingi til að geta stundað nám í framhaldsskóla eða háskóla hér á landi. Á framhaldsskólastigi skal vera um löggilt iðnnám og annað samþykkt starfsnám að ræða. Skilyrði fyrir veitingu leyfisins er að um fullt nám sé að ræða og að námið sé viðurkennt af Lánasjóði íslenskra námsmanna sem lánshæft.
Útlendingi er óheimiltað vera á landinu þegar sótt er um dvalarleyfið. Ef útlendingur er á landinu þegar sótt er um leyfið verður hann þá þegar að fara af landi brott.
Ef um framlengingu er að ræða sjá leiðbeiningar neðar á síðunni.
Námsmannaleyfi geta ekki verið grundvöllur búsetuleyfis.
Aðstandendur útlendings sem stundar doktorsnám hér á landi getur sótt um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar en ekki aðstandendur annarra námsmanna.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:
Ef að eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.
- Umsókn um dvalarleyfi - vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
- Ein passamynd. (35mm-45mm).
- Ljósrit úr vegabréfi -Gildistími vegabréfs skal vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
- Sakavottorð -Sakavottorð þarf að berast frá því ríki/ríkjum sem útlendingur hefur verið búsettur í síðastliðin fimm ár, í frumriti. Sakavottorð skal ekki vera eldra en 6 mánaða þegar það er lagt inn hjá stofnuninni.
- Sjúkratrygging -Trygging að lágmarki 2.000.000 ísl. kr. skal lögð fram frá vátryggingafélagi með starfsleyfi hér á landi. Sjúkratryggingin þarf að vera i gildi í 6 mánuði.
- Framfærsla - Framfærsla útlendings þarf að vera trygg þann tíma sem dvalaleyfisumsókn hans tekur til, í frumriti. Einstaklingar sem eru eldri en 18 ára þurfa að sýna sjálfstæða framfærslu.
- Húsnæðisvottorð - Umsækjanda ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til.
- Staðfesting á skólavist - Útlendingi ber að skila inn staðfestingu á skólavist.
- Staðfesting á skráningu námsmanns í fullt nám.
- Umboð - Útlendingur veitir aðila/stofnun hérlendis umboð til að sjá um mál hans hér á landi.
Ef sótt er um atvinnuleyfi námsmanns:
Útlendingastofnun gerir kröfur um að öllum erlendum vottorðum sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, fylgi þýðing sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda.
Ef ástæða þykir til áskilur Útlendingastofnun sér rétt á að óska eftir staðfestingu á gildi erlendra vottorðra. Um er að ræða annað hvort „apostille” vottun frá heimaríki umsækjanda eða tvöfalda staðfestingu frá utanríkisráðuneyti í heimaríki og sendiráði viðkomandi lands hér á landi eða næsta sendiráði (hafi viðkomandi ríki ekki sendiráð hér á landi). Hér undir falla m.a. sakavottorð, hjúskaparvottorð, fæðingarvottorð, forsjárgögn og önnur þau vottorð sem umsækjandi leggur fram með umsókn sinni um dvalarleyfi hér á landi.
Nánari upplýsingar um apostille vottun er að finna á http://hcch.e-vision.nl
Ef ákvörðun um veitingu dvalarleyfis liggur fyrir þarf útlendingur að fá D-áritun í næsta sendiráði sem er í fyrirsvari fyrir Íslands hönd og sér um útgáfu D-áritana. Í dvalarleyfisumsókn skal tekið fram í hvaða sendiráð útlendingur hyggst fá afhenta vegabréfsáritun. Lista yfir sendiráð er hægt að nálgast hér.
Eftir komu til landsins ber útlendingi að:
- skrá heimilisfang sitt á Íslandi hjá Þjóðskrá.
- skila inn læknisvottorði til Útlendingastofnunar. Sjá nánar undanþágur og verklagsreglur á heimasíðu Landlæknisembættisins.
- Mæta í myndatöku til að unnt sé að gefa út dvalarleyfiskort. Myndatakan er framkvæmd hjá Útlendingastofnun og hjá öllum sýslumannsembættum á landinu.
Að þeim skilyrðum uppfylltum er leyfið gefið út og dvalarleyfiskortið sent á heimilisfang viðkomandi. Upphaf dvalar miðast við útgáfudag dvalarleyfis.
Framlenging
Umsækjanda ber að mæta í eigin persónu í myndatöku þegar lögð er fram umsókn um dvalarleyfi nema annað sé tilgreint.
Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi vegna náms á meðan á námstíma stendur ef skilyrði dvalarleyfis eru enn uppfyllt og sýnt er fram á viðunandi námsárangur. Að jafnaði er dvalarleyfi endurnýjað til loka væntanlegrar námsannar.
Útlendingur þarf að skila inn umsókn um framlengingu að minnsta kosti mánuði áður en leyfi hans rennur út til að halda sömu réttindum. Ef umsækjandi ætlar að leggja inn umsókn um framlengingu eftir að leyfið rennur út þá ber umsækjanda að fara af landi brott. Umsóknin er ekki tekin til afgreiðslu fyrr en brottfararspjald hefur borist stofnuninni.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:
Ef að eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.
- Umsókn um dvalarleyfi - vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
- Húsnæðisvottorð- Umsækjanda ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til.
- Ljósrit úr vegabréfi - Gildistími vegabréfs skal minnst vera þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
- Framfærsla - Framfærsla útlendings þarf að vera trygg þann tíma sem umsókn hans tekur til. Útlendingi ber að sýna fram á að hann eigi nægilegt eigið fé til framfærslu, í frumriti. Einstaklingar sem eru eldri en 18 ára þurfa að sýna sjálfstæða framfærslu.
- Vottorð frá félagsþjónustunni - Útlendingur þarf að skila inn vottorði frá viðkomandi félagsþjónustu þar sem fram kemur hvort hann hafi þegið framfærslustyrk.
- Staðfesting á skráningu námsmanns í fullt nám
- Staðfesting á námsárangri - Útlendingur þarf að skila inn staðfestingu á námsárangri frá viðkomandi skóla.
- Sjúkratrygging - Við fyrstu framlengingu þarf umsækjandi að sýna fram á það með sannarlegum hætti að hann sé sjúkratryggður umbeðinn dvalarleyfistíma hér á landi. Um er að ræða t.d. vottorð frá Tryggingastofnun ríkisins eða sjúkratryggingu að lágmarki 2.000.000 ísl. kr. frá vátryggingafélagi með starfsleyfi hér á landi.
Ef sótt er um atvinnuleyfi námsmanns:
9. Útlendingi er heimilt að leggja inn umsókn um atvinnuleyfi og ráðningarsamning að fullnægðum skilyrðum um fullnægjandi námsárangur.
Þegar afgreiðslu umsóknar er lokið fær umsækjandi skriflega tilkynningu þar um.

