Dvalarleyfi fyrir barn
Dvalarleyfi fyrir barn
Umsækjanda ber að mæta í eigin persónu í myndatöku þegar lögð er fram umsókn um dvalarleyfi nema annað sé tilgreint.
Athugið að umsókn verður ekki tekin til afgreiðslu fyrr en að greitt hefur verið fyrir hana. Sjá nánar hér
Áætlaður afgreiðslutími umsókna fyrir dvalarleyfi er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist.
Forsjáraðila/foreldri er heimilt að sækja um dvalarleyfi fyrir barn sitt eftir komu þess til landsins. Dvalarleyfið er að jafnaði gefið út til eins árs í senn en þó aldrei til lengri tíma en dvalarleyfi forsjáraðila.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:
Ef að eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.
- Umsókn um dvalarleyfi - vel útfyllt og undirrituð af forsjáraðila, í frumriti.
- Ljósrit úr vegabréfi - Gildistími vegabréfs skal vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
- Ein passamynd (35mm-45mm).
- Sjúkratrygging - Sérstaka sjúkratryggingu þarf fyrir barn (16 ára eða yngra) ef það fær veitt dvalarleyfi á sama tíma og forsjáraðili. Ef forsjáraðili hefur verið búsettur á landinu í 6 mánuði eða lengur þarf barn (16 ára eða yngra) ekki sérstaka sjúkratryggingu.
- Húsnæðisvottorð - Forsjáraðili ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn barns tekur til. Vottorðið þarf að vera undirritað af húsnæðiseigenda og vottað af tveimur.
- Framfærsla- Foreldri sem búsett er hér á landi skal skila inn staðfestingu á framfærslu barns, skv. lágmarksframfærslustuðli sveitarfélaga, s.s. með launaseðlum síðustu þriggja mánaða í frumriti.
- Fæðingarvottorð - Staðfest frumrit af fæðingarvottorði barns þarf að fylgja umsókn um dvalarleyfi, í frumriti.
- Forsjárgögn/skilnaðargögn/dánarvottorð - Staðfest frumrit þessara gagna þarf að leggja fram með umsókn um dvalarleyfi, eftir því sem við á, til staðfestingar á formlegri forsjá barnsins. Ef forræði foreldra er sameiginlegt ber einnig að leggja fram vottaða yfirlýsingu þess foreldris sem ekki er búsett/statt á landinu að það sé samþykkt dvöl barnsins á landinu, í frumriti. Forsjárgögn skulu ekki vera eldri en 6 mánaða þegar þau eru lögð inn hjá stofnuninni.
- Vottorð um hjúskaparstöðu-Hafi barn náð 16 ára aldri þegar umsókn er lögð fram þarf að leggja fram staðfest gögn um hjúskaparstöðu barnsins.
Gögn sem talin eru upp í töluliðum 7, 8 og 9 eru nauðsynleg til staðfestingar á aldri, ólögræði og hjúskaparstöðu barns. Þessi gögn ásamt nauðsynlegum fylgigögnum þurfa að hafa borist Útlendingastofnun fyrir 18 ára afmælisdag barns með vísan til 3. mgr. 47. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 53/2003. Að öðrum kosti verður farið með umsókina sem um lögráða einstakling sé að ræða.
Með umsókn skal fylgja staðfest frumrit vottorða eftir því sem við á.Útlendingastofnun krefst þess að öllum erlendum vottorðum sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, fylgi þýðing sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda.
Ef ákvörðun um veitingu dvalarleyfis liggur fyrir þarf útlendingur að fá D-áritun í næsta sendiráði sem er í fyrirsvari fyrir Íslands hönd og sér um útgáfu D-áritana. Í dvalarleyfisumsókn skal tekið fram í hvaða sendiráð útlendingur hyggst fá afhenta vegabréfsáritun. Lista yfir sendiráð er hægt að nálgast hér.
Eftir komu til landsins ber útlendingi að:
- skrá heimilisfang sitt á Íslandi hjá Þjóðskrá
- skila inn læknisvottorði til Útlendingastofnunar. Sjá nánar undanþágur og verklagsregur á heimasíðu Landlæknisembættisins.
- Mæta í myndatöku til að unnt sé að gefa út dvalarleyfiskort. Myndatakan er framkvæmd hjá Útlendingastofnun og hjá öllum sýslumannsembættum á landinu.
Að þeim skilyrðum uppfylltum er leyfið gefið út og dvalarleyfiskortið sent á heimilisfang viðkomandi. Upphaf dvalar miðast við útgáfudag dvalarleyfis.
Framlenging
Umsækjanda ber að mæta í eigin persónu í myndatöku þegar lögð er fram umsókn um dvalarleyfi nema annað sé tilgreint.
Ef forsendur eru til endurnýjunar dvalarleyfis er það gert að fenginni umsókn forsjáaðila barns. Að jafnaði er dvalarleyfi endurnýjað í eitt ár en þó aldrei til lengri tíma en dvalarleyfi forsjáaðila. Heimila má barni áframhaldandi dvöl með sömu skilyrðum þar til ákvörðun hefur verið tekin um umsóknina. Sá réttur takmarkast við að umsókn sé lögð fram a.m.k. mánuði áður en eldra leyfi fellur úr gildi.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:
Ef að eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.
- Umsókn um dvalarleyfi - vel útfyllt og undirrituð af forsjáraðila, í frumriti.
- Ljósrit úr vegabréfi - Gildistími vegabréfs skal minnst vera þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
Þegar afgreiðslu umsóknar er lokið fær umsækjandi/forsjáraðili skriflega tilkynningu þar um.

