Íslenskunám

Viðurkennt íslenskunám sem skilyrði fyrir útgáfu búsetuleyfis frá og með 15. maí 2009

Í 1. mgr. 15. gr. l. nr. 96/2002 um útlendinga segir að heimilt sé að veita útlendingi búsetuleyfi hafi hann dvalið hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur búsetuleyfis. Í 50. gr. reglugerðar nr. 53/2003 kemur fram að umsækjandi um búsetuleyfi skuli hafa sótt námskeið í íslensku fyrir útlendinga, að lágmarki samtals 150 stundir. Umsækjandi skuli leggja fram vottorð til staðfestingar á þátttöku í slíku námskeiði og um ástundun sína, en tímasókn umsækjanda skal vera að lágmarki 85%. Vottorð um þátttöku í námskeiði skuli gefið út af námskeiðshaldara sem dómsmálaráðuneytið samþykkir. Heimilt sé að víkja frá ákvæðum 1. mgr. um þátttöku í námskeiði ef umsækjandi hefur náð viðhlítandi þekkingu í íslensku og leggur fram vottorð því til staðfestingar að hann hafi staðist próf í íslensku fyrir útlendinga. Vottorðið skuli gefið út af þeim sem dómsmálaráðuneytið hefur samið við um að halda próf í íslensku fyrir útlendinga sem hyggjast sækja um búsetuleyfi.

Hér að neðan er listi yfir þá námskeiðshaldara/prófhaldara sem dómsmálaráðuneytið samþykkir:

Skólar/námskeið

Heimilisfang

Alþjóðahús

Laugavegi 37, 101 Reykjavík

Betri Árangur (Inga Karlsdóttir)

Álfalandi 5, 108 Reykjavík

Farskólinn- Norðurland vestra

Skagfirðingabraut 21, 550 Sauðárkrókur   

Fjölmenning ehf (Ingibjörg Hafstað)

Laugavegi 59, 101 Reykjavík
Framvegis Síðumúla 6, 108 Reykjavík

Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Suðurgötu 12, 400 Ísafjörður

Fræðslunet Suðurlands

Tryggvagötu 25, 800 Selfoss

Fullorðinsfræðslan

Ármúla 5, 108 Reykjavík

Iðan- fræðslusetur

Skúlatúni 2, 105 Reykjavík

Jafnréttishús

Strandgötu 25, 220 Hafnarfjörður

Kvöldskóli Kópavogs

Snælandsskóla v/Víðigrund, 200 Kópavogur

Margvís

Þórsstíg 4, 600 Akureyri

Málaskóli Lingva

Laugavegi 170, 105 Reykjavík

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Skólavegi 1, 230 Reykjanesbær

Mímir - símenntun

Skeifunni 8, 108 Reykjavík

Námsflokkar Hafnarfjarðar

Skólabraut 1, 220 Hafnarfjörður

Retor sf

Auðbrekka 18, 200 Kópavogur

Saga-Akademía (Karl SM. Hreinsson)

Austurgötu 19, 235 Keflavíkurflugvöllur

Símenntunarmiðstöð Vesturlandi

Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes

Tómstundaskólinn (Mosfellsbæ)

Álafossvegi 23-270 Mosfellsbær

Tungumálaskólinn (Gígja Sv.)

Sundlaugavegi 24, 105 Reykjavík

Viska - símenntunarmiðstöð Vestmannaeyjum

Strandvegi 50, 900 Vestmannaeyjar

Þekkingarnet Austurlands

Tjarnarbraut 39, 700 Egilsstaðir

Þekkingarsetur Þingeyinga

Hafnarstétt 3, 640 Húsavík



 

 



 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.