Búsetuleyfi
Búsetuleyfi
Athugið að umsókn verður ekki tekin til afgreiðslu fyrr en greitt hefur verið fyrir hana. Sjá nánar hér
Áætlaður afgreiðslutími umsókna fyrir búsetuleyfi er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist.
Búsetuleyfi felur í sér rétt il ótímabundinnar dvalar hér á landi.
Skilyrði búsetuleyfis eru:
- Útlendingur hefur sótt námskeið í íslensku fyrir útlendinga
- Ekki liggja fyrir ástæður sem geta valdið brottvísun
- Trygg framfærsla
- Útlendingur hafi haft dvalarleyfi á sama grundvelli síðustu fjögur ár áður en umsókn um búsetuleyfi er lögð fram og skilyrði þess leyfis eru enn uppfyllt.
- Útlendingur eigi ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.
Búsetuleyfi fellur niður þegar útlendingur hefur verið búsettur eða dvalist erlendis samfellt lengur en 18 mánuði.
Útlendingur þarf að skila inn umsókn um búsetuleyfi að minnsta kosti mánuði áður en eldra leyfi hans rennur úr.
Umsækjanda ber að mæta í eigin persónu í myndatöku þegar lögð er fram umsókn um dvalarleyfi nema annað sé tilgreint.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:
Ef eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.
- Umsókn um búsetuleyfi - vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
- Ljósrit úr vegabréf/ferðaskilriki. Mikilvægt að vegabréf sé ekki útrunnið.
- Staðfest afrit af skattaframtölum síðustu fjögurra ára. Þeir sem skila skattframtöl á rafrænu formi til RSK geta sent staðfest afrit á pdf formi til Útlendingastofnunar í tölvupósti á netfangið busetuleyfi@utl.is
- Vottorð um námskeið eða kunnáttu í íslensku - í frumriti. Umsækjandi þarf að skila inn vottorði sem sýnir að hann hafi lokið 150 stundum í íslensku eða þreytt stöðupróf í íslensku hjá viðurkenndum skóla.
- Ráðningarsamningur (ef sótt er um óbundið atvinnuleyfi)
- Launaseðlar síðustu þriggja mánaða/staðfesting á framfærslu
- Vottorð frá sveitarfélagi varðandi framfærslustyrk sl. fjögur ár
Þegar afgreiðslu umsóknar er lokið fær umsækjandi skriflega tilkynningu þar um.
Búsetuleyfi fyrir börn yngri en 18 ára: Með umsókn barns um búsetuleyfi þarf auk umsóknar einungis að fylgja ljósrit úr vegabréfi barnsins. Athugið að forsjáraðili þarf að skrifa undir umsóknina.

