Skortur á vinnuafli (B)

Dvalar- og atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli B

Dvalar- og atvinnuleyfi sem veitt voru fyrir breytingu á lögum nr. 96/2002, þ.e. fyrir 01.08.2008, halda gildi sínu. Þetta þýðir að þeir sem hafa fengið útgefið dvalar- og atvinnuleyfi (B- og C-leyfi) geta sótt um endurnýjun á dvalarleyfi vegna skort á vinnuafli. Að öðru leyti heldur útlendingur sömu réttindum og fyrir lagabreytingu, þ.e. hann getur sótt um búsetuleyfi og hefur rétt á fjölskyldusameiningu.

Athugið að umsókn verður ekki tekin til afgreiðslu fyrr en að greitt hefur verið fyrir hana. Sjá nánar gjaldskrá.

Áætlaður afgreiðslutími umsókna fyrir dvalarleyfi er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist.

Dvalarleyfi vegna skorts á vinnuafli B getur verið grundvöllur búsetuleyfis.

Dvalarleyfi gefur rétt til fjölskyldusameiningar.

Umsókn um framlengingu á dvalarleyfi sem berst innan réttra tímamarka hefur þau áhrif að umsækjandi getur dvalist á Íslandi undir sömu skilmálum og áður, þangað til að ákvörðun hefur verið tekin um það hvort að umsókn verður samþykkt. Útlendingur þarf að skila inn umsókn um framlengingu að minnsta kosti mánuði áður en leyfi rennur út, að öðrum kosti þarf umsækjandi að fara úr landi.

Umsækjanda ber að mæta í eigin persónu í myndatöku þegar lögð er fram umsókn um dvalarleyfi nema annað sé tilgreint.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

Ef eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.

  1. Umsókn um dvalarleyfi - vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  2. Umsókn um atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli- vel útfyllt og undirrituð af atvinnurekanda, í frumriti.
  3. Ráðningarsamningur
  4. Ljósrit úr vegabréfi - Gildistími vegabréfs skal vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  5. Húsnæðisvottorð - Útlendingi ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til. Vottorðið þarf að vera undirritað af húsnæðiseiganda og vottað af tveimur aðilum.
  6. Vottorð frá félagsþjónustu - Umsækjandi þarf að skila inn vottorði frá viðkomandi félagsþjónustu þar sem fram kemur hvort hann hafi þegið framfærslustyrk.
  7. Yfirlit staðgreiðslu Útlendingur þarf að skila inn sundurliðun staðgreiðslu síðustu 12 mánuði frá viðkomandi skattayfirvöldum.

Þegar afgreiðslu umsóknar er lokið fær umsækjandi skriflega tilkynningu þar um.



 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.