Íþróttafólk

Dvalar- og atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk

Heimilt er að veita útlendingi dvalarleyfi vegna starfa hans sem íþróttamaður eða þjálfari hjá íþróttafélagi innan Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.

Athugið að umsókn verður ekki tekin til afgreiðslu fyrr en greitt hefur verið fyrir hana. Sjá nánar hér gjaldskrá.

Áætlaður afgreiðslutími umsókna fyrir dvalarleyfi er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist.

Umsókn um fyrsta leyfi í samfelldri dvöl skal hafa verið samþykkt áður en útlendingur kemur til landsins. Þetta þýðir að ef útlendingur er á landinu þegar sótt er um dvalarleyfi fyrir iþróttafólk í fyrsta sinn þarf hann að fara af landi brott.

Ef um framlengingu á dvalarleyfi fyrir íþróttafólk er að ræða sjá leiðbeiningar neðar á síðunni.

Dvalarleyfi fyrir íþróttafólk getur ekki verið grundvöllur búsetuleyfis, nema útlendingur hafi fyrst fengið útgefið dvalar- og atvinnuleyfi (B- eða C-leyfi) fyrir lagabreytingu, 01.08.2008, og leyfið hafi verið samfellt síðan.

Dvalarleyfið gefur rétt til fjölskyldusameiningar

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

Ef að eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.

  1. Umsókn um dvalarleyfi - vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  2. Umsókn um atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk - vel útfyllt og undirrituð af atvinnurekanda, í frumriti.
  3. Ráðningarsamningur
  4. Passamynd (35mm-45mm).
  5. Ljósrit úr vegabréfi - Gildistími vegabréfs skal vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  6. Sakavottorð - Sakavottorð þarf að berast frá því ríki/ríkjum sem umsækjandi hefur verið búsettur síðastliðin fimm ár. Sakavottorð skal ekki vera eldra en 6 mánaða þegar það er lagt inn hjá stofnuninni. Vakin er athygli á því að þeir hafa verið búsettir í Bandaríkjunum undanfarin 5 ár þurfa að skila inn sakavottorði frá alríkislögreglunni (FBI). Leiðbeiningar um hvernig sækja á um sakavottorð frá alríkislögreglunni er að finna á http://travel.state.gov/travel/tips/emergencies/emergencies_1201.html
  7. Sjúkratrygging - Trygging að lágmarki 2.000.000 ísl kr. skal lögð fram frá vátryggingafélagi með starfsleyfi hér á landi. Sjúkratryggingin þarf að vera i gildi í 6 mánuði.
  8. Umboð - Umsækjandi veitir aðstandanda eða öðrum aðila hérlendis umboð til að sjá um mál hans hér á landi.
  9. Húsnæðisvottorð - Útlendingi ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til. Vottorðið þarf að vera undirritað af húsnæðiseiganda og vottað af tveimur aðilum.

Útlendingastofnun gerir kröfur um að öllum erlendum vottorðum sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, fylgi þýðing sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda.

Ef ástæða þykir til áskilur Útlendingastofnun sér rétt á að óska eftir staðfestingu á gildi erlendra vottorðra. Um er að ræða annað hvort „apostille” vottun frá heimaríki umsækjanda eða tvöfalda staðfestingu frá utanríkisráðuneyti í heimaríki og sendiráði viðkomandi lands hér á landi eða næsta sendiráði (hafi viðkomandi ríki ekki sendiráð hér á landi). Hér undir falla m.a. sakavottorð, hjúskaparvottorð, fæðingarvottorð, forsjárgögn og önnur þau vottorð sem umsækjandi leggur fram með umsókn sinni um dvalarleyfi hér á landi.

Nánari upplýsingar um apostille vottun er að finna á http://hcch.e-vision.nl

Ef ákvörðun um veitingu dvalarleyfis liggur fyrir þarf útlendingur að fá D-áritun í næsta sendiráði sem er í fyrirsvari fyrir Íslands hönd og sér um útgáfu D-áritana. Í umsókn skal tekið fram í hvaða sendiráð útlendingur hyggst fá afhenta vegabréfsáritun. Lista yfir sendiráð er hægt að nálgast hér.

Eftir komu til landsins ber útlendingi að:

Að þeim skilyrðum uppfylltum er leyfið gefið út og dvalarleyfiskortið sent á heimilisfang viðkomandi. Upphaf dvalar miðast við útgáfudag dvalarleyfis.

Framlenging

Umsækjanda ber að mæta í eigin persónu í myndatöku þegar lögð er fram umsókn um dvalarleyfi nema annað sé tilgreint.

Umsókn um framlengingu á dvalarleyfi sem berst innan réttra tímamarka hefur þau áhrif að umsækjandi getur dvalist á Íslandi undir sömu skilmálum og áður, þangað til að ákvörðun hefur verið tekin um það hvort að umsókn verður samþykkt. Útlendingur þarf að skila inn umsókn um framlengingu að minnsta kosti mánuði áður en leyfi rennur út, að öðrum kosti þarf umsækjandi að fara úr landi.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

Ef eftirfarandi gögn eru ekki fullnægjandi þá lengist afgreiðslutími umsókna.

  1. Umsókn um dvalarleyfi - vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  2. Umsókn um atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk - vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  3. Ráðningarsamningur
  4. Ljósrit úr vegabréfi - Gildistími vegabréfs skal minnst vera þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  5. Húsnæðisvottorð - Útlendingi ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til.
  6. Vottorð frá félagsþjónustu - Umsækjandi þarf að skila inn vottorði frá viðkomandi félagsþjónustu þar sem fram kemur hvort hann hafi þegið framfærslustyrk.
  7. Yfirlit staðgreiðslu Útlendingur þarf að skila inn sundurliðun staðgreiðslu síðustu 12 mánuði frá viðkomandi skattayfirvöldum.

Þegar afgreiðslu umsóknar er lokið fær umsækjandi skriflega tilkynningu þar um.



 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.