Dvalar- og atvinnuleyfi
Dvalar- og atvinnuleyfi
Dvalarleyfi á grundvelli atvinnu skiptist í þrjá flokka:
Dvalarleyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli
- Heimilt er að veita útlendingi dvalarleyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða í Færeyjum.
- Um er að ræða tímabundið leyfi sem er hægt að framlengja einu sinni.
- Leyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli gefa ekki rétt til fjölskyldusameiningar
- Leyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli telja ekki upp í búsetuleyfi.
Dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar
- Heimilt er að veita útlendingi dvalarleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi sem krefst sérfræðiþekkingar.
- Ekki er um að ræða tímabundið verkefni.
- Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga þarf sérfræðiþekking útlendingsins að vera nauðsynleg hlutaðeigandi fyrirtæki og fela í sér háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem er viðurkennd hér á landi.
- Sérfræðingar eiga rétt á fjölskyldusameiningu.
- Sérfræðingaleyfi telja upp í búsetuleyfi.
Dvalarleyfi íþróttafólks
- Heimilt er að veita tímabundið dvalarleyfi vegna starfa íþróttamanna og þjálfara hjá íþróttafélögum innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
- Á heimasíðu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands www.isi.is má finna aðildarfélög sambandsins.
- Íþróttamenn eiga rétt á fjölskyldusameiningu.
- Íþróttamenn telja ekki upp í búsetuleyfi.
Þeir útlendingar sem fengu veitt dvalar- og atvinnuleyfi (B- eða C- leyfi) samkvæmt eldri lögum um útlendinga nr. 96/2002 halda réttindum sínum og halda áfram að telja upp í búsetuleyfi. Þeir eiga rétt á fjölskyldusameiningu.
Veldu flokk sem við á:
- Ertu að sækja um vegna tímabundins skorts á vinnuafli?
- Ertu að sækja um vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar?
- Ertu íþróttamaður eða þjálfari?
Ef ekkert að ofantöldu á við:

