Aðstandendur íþróttafólks
Dvalarleyfi fyrir aðstandanda útlendings með dvalarleyfi fyrir iþróttafólk
Nánustu aðstandendur eru:
- maki, sambúðarmaki og samvistarmaki,
- niðjar yngri en 18 ára og á framfæri viðkomandi
- ættmenni hans eða maka að feðgatali eldri en 66 ára og á þeirra framfæri.
Maka, sambúðarmaka, samvistarmaka og börnum yngri en 18 ára er heimilt að dvelja á landinu þegar sótt er um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar.
Dvalarleyfið getur ekki verið grundvöllur búsetuleyfis
Aðstandendur geta ekki sótt um atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002.
Veljið flokk sem við á:

