Hverjir þurfa ekki leyfi eftir ákveðinn tíma

Hverjir þurfa ekki dvalarleyfi eftir ákveðinn tíma

Meginreglan er sú að ríkisborgarar ríkja utan EES, sem ætla að dveljast hér á landi lengur en í 3 mánuði þurfa að hafa dvalarleyfi. Ríkisborgarar EES-ríkja mega dveljast hér á landi í allt að 3 mánuði án dvalarleyfis, en þeir ríkisborgarar EES-ríkjanna sem eru í atvinnuleit mega þó dvelja hér á landi í allt að 6 mánuði án dvalarleyfis (á ekki við um aðildarríkin nýju). Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi.

Ákveðnar undanþágur eru frá þeirri meginreglu að útlendingar þurfi dvalarleyfi hér á landi. Þeir sem þurfa ekki dvalarleyfi hér á landi eru:

  • Norrænir ríkisborgarar, þ.e. danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar.
  • Útlendingur sem öðlaðist Íslenskan ríkisborgararétt við fæðingu en hefur misst hann eða afsalað sér honum.
  • Útlendingur sem á íslenskan ríkisborgara að foreldri, ef hann hefur haft fasta búsetu og dvalarleyfi hér á landi samfellt í tvö ár, enda hafi foreldrið haft Íslenskan ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
  • Útlendingur sem á íslenskan maka og hefur búið með honum hér á landi og haft dvalarleyfi samfellt í þrjú ár eftir giftingu eða staðfestingu samvistar.
  • Útlendingur sem býr í skráðri sambúð með íslenskum ríkisborgara og hefur haft fasta búsetu og dvalarleyfi hér á landi samfellt í fimm ár frá skráningu sambúðarinnar, enda séu bæði ógift og hinn íslenski ríkisborgari hafi haft ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.

 


 

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.