utl.is - Leyfi - gjaldtaka - myndataka
Leiðbeiningar umsækjanda um myndatöku fyrir dvalarleyfiskort.
Útlendingur sem má vera staddur á landinu þegar umsókn um dvalarleyfi er lögð fram:
- Umsækjandi kemur í eigin persónu í byrjun umsóknarferlis á umsóknarstað og er skylt að koma með þau ferðaskilríki/vegabréf sem hann framvísaði við komu til landsins
- Myndataka fer fram á umsóknarstað
- Umsækjandi skilar inn umsókn og öðrum fylgigögnum og greiðir fyrir umsókn
Útlendingur sem ekki má vera staddur á landinu þegar umsókn um dvalarleyfi er lögð fram:
- Myndataka fer fram eftir komu til landsins þegar leyfi hefur verið veitt.
- Þegar dvalarleyfi hefur verið veitt fær umsækjandi tilkynningu frá Útlendingastofnun þess efnis að umsækjandi eigi að koma í eigin persónu í myndastöku og skal umsækjandi einnig hafa meðferðis þau ferðaskilríki/vegabréfi sem hann framvísaði við komu til landsins.
Sýslumenn taka á móti umsóknum dvalarleyfi og taka myndir af umsækjendum. Sýslumenn í Kópavogi og Hafnarfirði ásamt Útlendingastofnun munu sjá um móttöku umsókna á höfuðborgarsvæðinu.

