Leiðbeiningar um greiðslu
Leiðbeiningar vegna greiðslu umsókna um dvalarleyfi.
Mikilvægt!
Ekki verður tekið á móti umsóknum sem sendar eru í pósti, nema frá ríkisborgurum utan EES sem eru að sækja um dvalarleyfi í fyrsta sinn og verða að sækja um áður en þeir koma til Íslands.
Þegar lagt er inn á reikning:
Kennitala = 670269-6399 Banki = 1175, HB = 05, reikningsnúmer = 411973
Nafn banka: Sparisjóður Vélstjóra, Borgartúni 18, 105 Reykjavík.
IBAN: IS071175054119736702696399
SWIFT CODE: LSICISRE
MUNA AÐ PRENTA GREIÐSLUKVITTUN OG SENDA MEÐ UMSÓKN.
Ef lagt er inn á reikning Útlendingastofnunar er MIKILVÆGT að hafa í huga að greiðslukvittun þarf að fylgja með umsókn til þess að hún fari í vinnslu.
Einnig er afar MIKILVÆGTað það komi fram í skýringu þegar lagt er inn á reikning, fæðingardagur umsækjanda og nafn. Þetta þarf að gerast samkvæmt vegabréfi.
Dæmi 010185-4679, John Smith-Brown.
Vinsamlegast takið eftir að afgreiðslugjald er óendurkræft!

