Framfærsla
Framfærsla
Útlendingur sem sækir um dvalarleyfi skal sýna fram á að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem hann sækir um að fá að dvelja hér á landi.
Lágmarksframfærsla skal miðuð við útgefinn framfærslustuðul sveitarfélaganna.
- Lágmarksframfærsla einstaklings er 125.540 kr. á mánuði.
- tveggja manna fjölskylda 200.864 kr. á mánuði
Börn yngri en 18 ára eru á framfæri foreldra sinna.
Einstaklingar sem eru eldri en 18 ára þurfa að sýna sjálfstæða framfærslu.
Hjón hafa gagnkvæma framfærsluskyldu
Aðrir verða að sýna eigin framfærslu
Til að sýna fram á trygga framfærslu þarf umsækjandi/framfærandi að sýna að hann geti fullnægt lágmarks framfærslukröfum, sjá framfærslustuðul að ofan. Ef að umsækjandi er á framfæri annars einstaklings þarf framfærandi að leggja fram launaseðla síðustu þriggja mánaða og/eða staðfest afrit af síðustu skattaskýrslu.
Samkvæmt 2. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 53/2003 telst framfærsla útlendings nægilega trygg ef:
- útlendingurinn fær launatekjur eða greiðslur af sjálfstæðri atvinnustarfsemi sem nægja til framfærslu hans,
útlendingur fær fastar reglulegar greiðslur sem nægja til framfærslu hans, - útlendingur hefur nægilegt eigið fé til framfærslu meðan á dvölinni stendur; eigið fé viðkomandi þarf að vera í gjaldmiðli sem skráður er hjá Seðlabanka Íslands,
- útlendingur fær námslán eða námsstyrk sem nægir til framfærslu hans, í gjaldmiðli sem skráður er hjá Seðlabanka Íslands.
Framfærsla getur stuðst við fleiri en einn staflið 2. mgr. og telst þá trygg ef útlendingurinn sýnir fram á að samanlögð fjárráð hans nægi til framfærslunnar.
Greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar ríkis eða sveitarfélags veita ekki rétt til dvalarleyfis.
Ath: Þegar sótt er um framlengingu þarf að leggja fram vottorð frá sveitarfélagi varðandi framfærslustyrk.

