Fjölskylda EES

Skráning ríkisborgara UTAN EES sem eru aðstandendur EES ríkisborgara

Nánasti aðstandandi EES ríkisborgara eru:

  • maki, sambúðarmaki eða samvistarmaki,
  • niðji útlendings og/eða maka hans, ef niðjinn er yngri en 21 árs eða á þeirra framfæri,
  • ættmenni útlendings eða maka hans, að feðgatali, sem er á framfæri þeirra.

Til að sækja um dvalarskírteini þarf að:

  • Sækja um kennitölu hjá þjóðskrá
  • Skila inn skráningarblaði og koma í myndatöku hjá Útlendingastofnun eða næsta sýslumannsembætti.

Vinsamlegast athugið:

EES aðstandandi þarf að vera skráður í einstaklingsskrá hjá Þjóðskrá.

Ásamt skráningarblaði þarf að skila inn eftirfarandi gögnum:

  • Ljósrit út vegabréfi
  • Gögn sem sýna fram á forsendur dvalar þess sem réttur til dvalar er dreginn af
  • Vottorð um fjölskyldutengsl eftir því sem við á/:

Hjúskaparvottorð/fæðingarvottorð/dánarvottorð/forsjárgögn/skilnaðargögn

Útlendingastofnun gerir kröfur um að öllum erlendum vottorðum sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, fylgi þýðing sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda.

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.