Umboð
Umboð
Ef umsækjandi getur ekki sjálfur verið í beinum samskiptum við Útlendingastofnun skal umsækjandi gefa einstaklingi búsettum hér á landi umboð til að:
- fylgjast með framgangi umsóknar um dvalarleyfi/vegabréfsáritun
- fá afhent gögn frá stofnuninni varðandi umsókn sína um dvalarleyfi/vegabréfsáritun
- kæra ákvörðun Útlendingastofnunar til dómsmálaráðuneytisins vegna synjunar á dvalarleyfi/vegabréfsáritun.
Í umboði skal vera skýrt tekið fram hvað umboðsmanni er heimilt að gera fyrir hönd umsækjanda, hver tilgangur umboðsins er. Í umboðinu skal umsækjandi rita fullt nafn sitt og fæðingardag, staðfesta það með undirskrift sinni og undirskriftin vottuð af tveimur vottum ásamt dagsetningu og stað þegar það er skrifað. Einnig þarf að koma fram fullt nafn umboðsmanns, kennitala, símanúmer, heimilisfang og netfang.
Þau skilyrði sem Útlendingastofnun hefur sett sér um útlit og gerð umboðs eru eftirfarandi:
- vottorð verða að vera í frumriti og þýdd af löggiltum skjalaþýðanda. Útlendingastofnun krefst þess að öllum umboðum sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, fylgi þýðing sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda.
Tillaga að umboði er að finna hér á íslensku og ensku.

