Leyfi

Dvalarleyfi

Erlendur ríkisborgari (ríkisborgari utan EES) sem ætlar að dvelja lengur en þrjá mánuði hér á landi þarf að hafa dvalarleyfi.

EES-útlendingur má dvelja hér á landi án sértaks leyfis í þrjá mánði en í atvinnuleit en má þó dvelja hér í sex mánuði án sérstaks leyfis (Á ekki við um launþega frá Rúmeníu og Búlgaríu, en þeir þurfa að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi hjá Útlendingastofnun).

Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi - á ekki við um EES-útlending.

Ríkisborgarar ríkja utan EES sem eru aðstandendur EES-ríkisborgara skulu sækja um dvalarskírteini hjá Útlendingastofnun innan þriggja mánaða frá komu til landsins.

Útlendingur sem sækir um dvalarleyfi skal hafa náð 18 ára aldri. Útlendingur yngri en 18 ára getur einungis fengið dvalarleyfi í tengslum við dvalarleyfi foreldris eða forsjármanns. Athugið að umsókn verður ekki tekin til afgreiðslu fyrr en að greitt hefur verið fyrir hana. Sjá nánar hér gjaldskrá.

Tilgangur umsækjanda með dvöl hér á landi skal vera í samræmi við það dvalarleyfi sem sótt er um. Ef umsækjandi getur ekki sjálfur verið í beinum samskiptum við Útlendingastofnun skal umsækjandi gefa einstaklingi búsettum hér á landi umboð sem er að finna hér.

Ertu aðstandandi EES ríkisborgara?

Ertu ríkisborgari ríkis utan EES?

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.