Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Leturstærð

The Directorate of Immigration, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavik. 

The office is open Monday to Friday from 10.00 - 14.00

fms

Þjónusta
Útlendingastofnun
Svar vegna ummæla um flóttamenn og afdrif þeirra
Tuesday, 22 November 2011 14:53
There are no translations available.

Svar vegna ummæla um flóttamenn og afdrif þeirra

Síðastliðinn fimmtudag birtist grein eftir Baldur Kristjánsson og Teit Atlason í Fréttatímanum undir yfirskriftinni Flóttamaður – Glæpamaður. Teitur Atlason birti einnig pistil á bloggi sínu á dv.is 19. nóvember s.l. þar sem fjallað var um tilurð þeirrar greinar og lýst eftir afdrifum tiltekinna hælisleitenda hér á landi. Fyrir það fyrsta ber að fagna því að slíkir þungaviktarmenn annars vegar í bloggheimi og hins vegar á vegum Þjóðkirkjunnar skuli sýna málefnum hælisleitenda og flóttamanna slíkan áhuga og það er víst að ekki er vanþörf á að fram fari umræða um þessi málefni sem og í reynd önnur mál er varða innflytjendur á Íslandi.

Read more...
 
Yfirlit yfir umsóknir um hæli 2011 og afdrif þeirra
Tuesday, 22 November 2011 14:00
There are no translations available.

hlismynd2011.jpg
 
Bilun í tölvubúnaði hjá Útlendingastofnun
Tuesday, 25 October 2011 12:14
There are no translations available.

Vegna bilunar í hugbúnaði tölvukerfis Útlendingastofnunar hefur hægst á rafrænum samskiptum Útlendingastofnunar og Vinnumálastofnunar. Þessi bilun hefur í för með sér seinkun á vinnslu atvinnutengdra dvalarleyfa. Unnið er að viðgerð en gera má ráð fyrir því að það taki nokkra daga. Útlendingastofnun biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 
Visa Information System - VIS
Monday, 17 October 2011 09:13

A new central database, Visa Information System – VIS, started operations on October 11th.  Applications for visas for the Schengen area, including Iceland will be registered in this system, which the Directorate is now a part of.

Iceland‘s participation in this system is a part of the Schengen participation and respective legislation, e.g. the regulation on visas No. 1160/2010.

The VIS will not start operations on the same date in all Schengen consulates worldwide.  It has started in North Africa and will gradually be implemented worldwide.  Applicants must appear in person, be photographed and fingerprinted and the biometric information will be stored in the central system.  The VIS helps to avoid identity and visa fraud and will enhance security at the borders, as fingerprints will be checked ensuring that only the rightful visa holder is using the visa.

 
Yfirlit yfir meðferð hælismála - tölfræði sl. ára
Monday, 09 May 2011 14:40
There are no translations available.

Vegna fjölmiðlaumfjöllunar um málefni hælisleitenda hér á landi í síðustu viku vill Útlendingastofnun koma eftirfarandi tölfræði og útskýringum á framfæri.

Hér að neðan er birt yfirlit yfir fjölda umsókna um hæli hér á landi frá árinu 1996 til 2010 og afdrif þeirra umsókna. Eins og sjá má af yfirlitinu þá er fjöldi hælisleitenda hér á landi nokkuð breytilegur milli ára og má segja að mjög fáar umsóknir hafi verið lagðar fram á árunum 1996 til 2000 en frá árinu 2001 hefur fjöldi umsókna á ári verið frá 35 og til 117. Yfirlitið er þannig upp byggt að litið er til fjölda umsókna á hverju ári og hver afdrif þeirra umsókna hafa orðið. Rétt er að árétta að málsmeðferðartími vegna umsókna um hæli getur verið misjafn og sum málanna hafa ekki verið afgreidd á því ári sem umsókn berst.

Til þess að útskýra töfluna skal bent á þrjá meginflokka:

Drógu til baka/horfnir: á hverju ári er töluverður fjöldi umsókna lagður upp þar sem umsækjandi kýs að draga umsókn sína til baka eða hreinlega yfirgefur landið áður en niðurstaða liggur fyrir í máli hans.

Endursendingar: með endursendingum er átt við mál sem afgreidd eru á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eða annarra samninga sem kveða á um að annað ríki skuli fjalla um umsókn viðkomandi um hæli. Í þeim málum taka íslensk stjórnvöld ekki afstöðu til þess hvort viðkomandi þurfi á hæli eða vernd að halda hér á landi þar sem annað aðildarríki fyrrgreindra samninga ber ábyrgð á meðferð umsóknarinnar.

Efnismeðferð: hér er átt við þau mál þar sem íslensk stjórnvöld taka efnislega afstöðu til þess hvort viðkomandi umsækjandi skuli fá hæli eða mannúðarleyfi hér á landi.

Þegar fjallað er um mál hælisleitenda á Íslandi er því oft slegið upp að mjög fáir einstaklingar fái hæli hér á landi eða jákvæða niðurstöðu í sitt mál. Sé einungis litið til fjölda umsókna á ári og þess hve margir fá leyfi til dvalar þá er það rétt að hlutfall þeirra sem fá leyfi hefur oft á tíðum verið lágt. Hins vegar er rétt að árétta að þegar tekið er tillit til þeirra sem láta sig hverfa eða draga umsókn sína til baka þá breytist hlutfallið töluvert. Þá má sjá að þróunin hefur verið sú frá árinu 2007 að fleiri hælisleitendur fá jákvæða niðurstöðu.

 

Samantekt:

Árið 2007 fengu 8 af 42 umsækjendum um hæli dvalarleyfi eða hæli þ.e. um 19%. Séu þau mál dregin frá þar sem umsækjandi dró til baka eða lét sig hverfa þá er hlutfallið um 24%. Sé einungis litið til þeirra mála sem Útlendingastofnun tók til efnismeðferðar þá er hlutfall þeirra sem fá áframhaldandi leyfi til dvalar 47%.

Árið 2008 fengu 11 af 73 umsækjendum um hæli dvalarleyfi eða hæli þ.e. um 15%. Séu þau mál dregin frá þar sem umsækjandi dró til baka eða lét sig hverfa þá er hlutfallið um 19%. Sé einungis litið til þeirra mála sem Útlendingastofnun tók til efnismeðferðar þá er hlutfall þeirra sem fá áframhaldandi leyfi til dvalar um 50%. Að auki snéri dómsmálaráðuneytið við einni synjun Útlendingastofnunar frá því ári.

Árið 2009 fengu 9 af 35 umsækjendum um hæli dvalarleyfi eða hæli þ.e. tæp 26%. Séu þau mál dregin frá þar sem umsækjandi dró til baka eða lét sig hverfa þá er hlutfallið um 33%. Sé einungis litið til þeirra mála sem Útlendingastofnun tók til efnismeðferðar þá er hlutfall þeirra sem fá áframhaldandi leyfi til dvalar um 60%.

Árið 2010 er ekki marktækt til samanburðar þar sem enn á eftir að taka ákvörðun í 8 málum frá því ári.

Yfirlit yfir fjölda umsókna um hæli frá 1996 til 2010 og afdrif þeirra:

Ár

Fjöldi umsókna    

Drógu til baka/horfnir    

Endursendingar

 Efnismeðferð 

1996 4 0 0 4
1997 6 2 1 3
1998 24 2 5 17
1999 24 2 4 18
2000 25 3 2 20
2001 53 19 16 18
2002 117 56 40 21
2003 80 30 26 24
2004 76 15 34 27
2005 87 5 46 36
2006 39 7 10 22
2007 42 9 16 17
2008 73 16 35 22
2009 35 8 12 15
2010 51 11 11 29
Samtals 736 185 258 293

 

 

Ár

 

 

Efnismeðferð

                  

 

Synjun

                        

 

Veitt hæli

        

 

Mannúðar-leyfi

                 

                    

DMR/ leyfi hæli

                 

                  

Ólokin  mál hjá UTL

1996 4 3 0 1 0 0
1997 3 0 0 3 0 0
1998 17 4 0 13 1 0
1999 18 9 1 8 0 0
2000 20 16 0 4 0 0
2001 18 18 0 0 8 0
2002 21 15 0 6 0 0
2003 24 21 0 3 0 0
2004 27 27 0 0 3 0
2005 36 34 0 2 1 0
2006 22 22 0 0 0 0
2007 17 9 1 7 0 0
2008 22 11 3 8 1 0
2009 15 6 8 1 0 0
2010 29 13 8 0 0 8
Samtals 293 208 21 56 14 8

 

Frá árinu 2010 eru enn í efnismeðferð 8 umsóknir um hæli.

Það sem af er árinu 2011 hafa 15 manns sótt um hæli á Íslandi.

 

 

 

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 Next > End >>

Page 3 of 4