ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Endurskoðun framfærsluviðmiða vegna veitingar dvalar- og búsetuleyfa lokið

5.3.2010

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 11. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga er trygg framfærsla eitt af grundvallarskilyrðum fyrir veitingu dvalarleyfis, auk þess sem trygg framfærsla er eitt af skilyrðum búsetuleyfis skv. c-lið 1. mgr. 15. gr. laganna. Umsækjandi um dvalarleyfi skal skv. 1. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 53/2003 sýna fram á að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem hann sækir um að fá að dveljast hér á landi.

Lágmarksframfærsla skal skv. ákvæðinu miðuð við útgefinn framfærslustuðul félagsþjónustu sveitarfélags. Útlendingastofnun hefur í framkvæmd tekið mið af leiðbeiningum félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem eru gefnar út fyrir sveitarfélögin til leiðbeiningar um reglur um fjárhagsaðstoð, við mat á framfærsluþörf umsækjenda.

Í september árið 2008 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að breyta þeim viðmiðum sem lögð höfðu verið til grundvallar mati á tryggri framfærslu þannig að þegar umsækjandi um dvalar- eða búsetuleyfi byggði framfærslu á launatekjum skyldi horft til þeirrar upphæðar sem væri til ráðstöfunar að frádreginni staðgreiðslu í stað heildartekna fyrir staðgreiðslu áður. Með þeirri breytingu var sérstaklega horft til þess að jafna stöðu þeirra umsækjenda um dvalarleyfi sem sýndu fram á trygga framfærslu með launatekjum annars vegar og svo þeirra sem byggðu framfærslu sína á eigin fé hins vegar, en þannig þyrftu þeir að sýna fram á að hafa sömu upphæð til raunverulegrar ráðstöfunar miðað við stuðulinn um lágmarksframfærslu. Breytingin tók gildi 1. október 2008.

Í lok desember 2009 tók Útlendingastofnun til endurskoðunar reikniaðferð á viðmiðum um trygga framfærslu sem er lýst hér að ofan. Þeirri endurskoðun er nú lokið og er niðurstaða hennar sú að rétt sé að hverfa á ný til þess viðmiðs sem farið var eftir fyrir 1. október 2008. Það felur í sér að þegar umsækjandi um dvalar- eða búsetuleyfi hyggst byggja framfærslu á launatekjum verður horft til heildartekna fyrir staðgreiðslu, þ.e. brúttótekna. Þau viðmið eru í fullu og réttu samræmi við útgefnar leiðbeiningar félags- og tryggingamálaráðuneytisins um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.

Breytingin nær til allra dvalarleyfis- og búsetuleyfisumsókna sem eru í vinnslu hjá Útlendingastofnun. Á næstu vikum verður farið yfir þær ákvarðanir sem fólu í sér synjun umsókna um dvalar- eða búsetuleyfi á tímabilinu 1. október 2008 til desember 2009 þar sem ákvörðunin byggði á viðmiðinu um að miða skyldi við launatekjur eftir staðgreiðslu, þ.e. nettótekjur.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.