ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Bilun í símkerfi Útlendingastofnunar
Bilun hefur verið í símkerfi stofnunarinnar í allan dag og er ekki hægt að ná símleiðis inn til stofnunarinnar sem stendur. Unnið er að viðgerðum og vonast er til að þeim ljúki sem fyrst. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem bilunin kann að valda viðskiptavinum.

