ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Ríkisborgarar Serbíu, Svartfjallalands og Makedóníu undanþegnir frá skyldu til að hafa vegabréfsáritun við komu til Íslands
Þann 18. desember 2009 tók gildi reglugerð nr. 999/2009 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 53/2003. Samkvæmt breytingunni eru ríkisborgarar Serbíu, Svartfjallalands og Makedóníu nú undanþegnir frá skyldu til að hafa vegabréfsáritun við komu til Íslands. Undanþágan nær eingöngu til þeirra ríkisborgara sem eru handhafar vegabréfa með lífkennum. Reglugerðarbreytinguna sjálfa má nálgast hér: http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=c30d0fe0-bb8c-4a74-96b8-8d6f221c4efc

