ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Vottorð vegna prófs í íslensku fyrir umsókn um ríkisborgararétt gildir einnig sem vottorð um íslenskukunnáttu fyrir umsækjendur um búsetuleyfi
Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verða nú haldin í annað sinn og hefjast þau 30. nóvember n.k. (sjá nánar: http://www.domsmalaraduneyti.is/frettir/nr/6801). Umsækjendur um búsetuleyfi geta tekið prófið þó svo þeir séu ekki að sækja um íslenskan ríkisborgararétt. Þeir sem standast prófið verða undanþegnir námskeiðssetu vegna umsóknar um búsetuleyfi.

