ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Yfirlit yfir meðferð hælismála frá árinu 1990 til 2007
Frá 1990 til 1995 sóttu 26 einstaklingar um hæli á Íslandi. Ekki eru handbærar tölur um afdrif þeirra mála. Frá 1996 til 2007 sóttu 577 einstaklingar um hæli á Íslandi. Af þeim voru mál 227 einstaklinga tekin til efnismeðferðar af íslenskum yfirvöldum en það eru um 38% af fjölda umsókna. Af þeim fengu 60 einstaklingar dvalarleyfi af mannúðarástæðum og 2 fengu hæli. Alls fengu því 62 einstaklingar jákvæða niðurstöðu vegna umsóknar um hæli eða um 27% af þeim málum sem tekin voru til efnismeðferðar. Af þeim 577 einstaklingum sem sóttu um hæli frá 1996 til 2007 drógu 150 einstaklingar umsóknir sínar til baka eða létu sig hverfa af landi brott áður en niðurstaða lá fyrir en það eru um 26% umsækjanda. Um 35% málanna var lokið á grundvelli Dyflinnarsamningsins eða samninga við hin Norðurlöndin með endursendingu viðkomandi til annars ríkis en heimaríkis. Þá hafa nokkrir umsækjendur sem fengið hafa synjun eða dregið umsóknir sínar til baka fengið heimild til dvalar hér á landi á öðrum forsendum svo sem hjúskap. Sem dæmi má nefna að af þeim sem sóttu um árið 1999 fengu 3 slík leyfi og 2 af þeim sóttu um árið 2000. Enn fremur er rétt að geta þess að enn eru nokkur mál frá þessu tímabili til meðferðar hjá dómsmálaráðuneytinu og eitt mál er til endurskoðunar hjá Útlendingastofnun.
Fjöldi hælisleitanda frá 1996 til 2007
| Ár | Fjöldi umsókna | Drógu til baka/horfnir | Endur-sendingar* | Efnis-meðferð |
| 1996 | 4 | 0 | 0 | 4 |
| 1997 | 6 | 2 | 1 | 3 |
| 1998 | 24 | 2 | 5 | 17 |
| 1999 | 24 | 2 | 4 | 18 |
| 2000 | 25 | 3 | 2 | 20 |
| 2001 | 53 | 19 | 16 | 18 |
| 2002 | 117 | 56 | 40 | 21 |
| 2003 | 80 | 30 | 26 | 24 |
| 2004 | 76 | 15 | 34 | 27 |
| 2005 | 87 | 5 | 46 | 36 |
| 2006 | 39 | 7 | 10 | 22 |
| 2007 | 42 | 9 | 16 | 17 |
| Samtals | 577 | 150 | 200 | 227 |
*Endursending: Viðkomandi sendur til annars evrópurríkis á grundvelli Dyflinnarsamnings, Norðurlandasamndings eða Færeyjarsamnings, þar sem mál viðkomandi skal tekið til efnismeðferðar.
Niðurstöður efnismeðferðar 1996-2007
| Ár | Efnis-meðferð | Synjanir ÚTL | Veitt hæli ÚTL | Mannúðar-leyfi ÚTL | Mannúðar-leyfi DKM* |
| 1996 | 4 | 3 | 0 | 1 | 0 |
| 1997 | 3 | 0 | 0 | 3 | 0 |
| 1998 | 17 | 4 | 0 | 13 | 1 |
| 1999 | 18 | 9 | 1 | 8 | 0 |
| 2000 | 20 | 16 | 0 | 4 | 0 |
| 2001 | 18 | 18 | 0 | 0 | 8 |
| 2002 | 21 | 15 | 0 | 6 | 0 |
| 2003 | 24 | 21 | 0 | 3 | 0 |
| 2004 | 27 | 27 | 0 | 0 | 3 |
| 2005 | 36 | 34 | 0 | 2 | 1 |
| 2006 | 22 | 22 | 0 | 0 | 0 |
| 2007 | 17 | 9 | 1 | 7 | 0 |
| Samtals | 227 | 178 | 2 | 47 | 13 |
*Mannúðarleyfi DKM: Fjöldi þeirra mála þar sem dómsmálaráðuneytið hefur í kjölfar kæru á synjun Útlendingastofnunar veitt mannúðarleyfi.

