ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Samstarfssamningur Útlendingastofnunar og Háskólans í Reykjavík

22.4.2009

Háskólinn í Reykjavík (HR) og Útlendingastofnun (ÚTL) hafa gert með sér samstarfssamning sem hefur það að markmiði að liðka fyrir afgreiðslu dvalarleyfa til erlendra nemenda HR utan Evrópusambandsins og tryggja að þeir dvelji löglega á Íslandi. Samningurinn tekur til nemenda í BS/BA námi eða lengra komna.
Samningurinn felur það m.a. í sér að HR sækir hér eftir um dvalarleyfi fyrir nemendur sína, og ábyrgist að þeir hafi öruggt húsnæði á meðan á dvöl þeirra stendur. Skólinn ábyrgist jafnframt að nemendurnir standist kröfur um undirbúning varðandi námið að því er tungumálakunnáttu varðar. HR kemur jafnframt fram fyrir hönd þessara nema í öllum samskiptum sem þeir kunna að þurfa að eiga við ÚTL.
Önnur stór breyting sem í samningnum felst, liggur í gildistíma dvalarleyfa og verklagi við endurnýjun. Skal skólinn senda umsóknir um framlengingu dvalarleyfa, ásamt fylgigögnum, til ÚTL minnst mánuði áður en fyrri leyfi renna út.
Dvalarleyfi til þeirra sem njóta námsstyrkja eða námslána verða gefin út til allt að þriggja ára, en til annarra til allt að eins árs (háð framfærslu). Dvalarleyfi verða afturkölluð ef forsendur fyrir dvalarleyfinu bresta, svo sem trygg framfærsla og námsframvinda.
Samkvæmt samkomulaginu skuldbindur HR sig jafnframt til að senda ÚTL yfirlit yfir námsframvindu allra þeirra sem falla undir samninginn tvisvar á ári, fyrir 1. febrúar og 1. júlí ár hvert.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.