ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Athugasemd vegna frétta í DV

17.10.2008

Í DV í dag er greint frá sjálfsvígi lettnesks manns í gistiheimilinu Fit í
Njarðvíkum. Útlendingastofnun telur óhjákvæmilegt að leiðrétta það sem missagt er í
fréttinni og snýr að meðferð hælismálsins.

Í fréttinni segir að maðurinn hafi beðið í nokkra mánuði eftir niðurstöðu í
hælismáli sínu hér á landi. Gætir þar nokkurrar ónákvæmni því útlendingastofnun lauk
meðferð máls hans á einni viku. Um er að ræða karlmann frá Lettlandi, sem hafði
verið í hælismeðferð í Svíþjóð og Noregi síðastliðin ár. Rétt er að undirstrika að
lettneskum borgurum er eins og öðrum EES borgurum heimilt að dvelja á Norðurlöndum.

Hann kom til Íslands 3. september sl. og sótti um hæli hér á landi.
Útlendingastofnun synjaði því erindi með ákvörðun viku síðar, enda ekkert fram komið
sem gaf vísbendingu um að niðurstöður norskra og sænskra yfirvalda væru rangar. Um
leið var útskýrt fyrir manninum að honum væri heimilt að dvelja hér á landi á
grundvelli réttar síns til frjálsrar farar, t.d. á grundvelli atvinnuþátttöku eða
atvinnuleitar. Vangaveltur blaðamanns um óvissu mannsins um framhald máls hans eða
ótta hans við að vera sendur til Lettlands eru því tilhæfulausar miðað við þær
aðstæður sem í raun voru uppi.

Rétt er að taka fram að ekkert í framkomu mannsins gaf tilefni til að ætla að hann
væri í sjálfsvígshættu eða að hann ætti við geðrænan eða sálrænan vanda að stríða.
Mjög óvenjulegt er að hælisleitendur komi hingað frá EES ríkjum.





Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.