ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Frumrit erlendra vottorða
Útlendingastofnun gerir þær kröfur að með vottuðum frumritum erlendra vottorða, sem lögð eru fram með umsókn um dvalarleyfi, fylgi staðfesting (?apostille?) frá utanríkisráðuneytinu í heimaríki umsækjanda. Hér undir falla m.a. sakavottorð, hjúskaparvottorð, fæðingarvottorð og önnur þau vottorð sem umsækjandi leggur fram með umsókn sinni um dvalarleyfi hér á landi.

