ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Nýtt verklag við afgreiðslu umsókna EES ríkisborgara
Frá og með þriðjudeginum 15. janúar 2008 munu allir ríkisborgarar EES fá bréf sem staðfestingu á dvalarleyfi þeirra á Íslandi. Umsóknarform munu einfaldast til muna og allir EES launþegar hafa kost á því að fá umsókn sína afgreidda samstundis við afhendingu, að uppfylltum þeim skilyrðum sem gerðar eru til EES ríkisborgara. Þetta á við um móttöku umsókna hjá Útlendingastofnun, umsækjendur sem skila inn umsóknum sínum til sýslumannsembætta fá ekki umsóknir sínar afgreiddar samstundis. Ekki er þörf á myndatöku fyrir ríkisborgara EES við þetta nýja verklag þar sem að dvalarleyfiskort eru ekki lengur gefin út fyrir EES ríkisborgara.

