ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Ríkisborgarar Rúmeníu og Búlgaríu

30.8.2007

Þann 1. ágúst 2007 tók gildi samningur um stækkun Evrópska efnahagssvæðisins (EES) vegna aðildar Rúmeníu og Búlgaríu. Vakin er athygli á því að samkvæmt aðlögunarákvæðum samningsins hefur frjálsri för launafólks frá þessum ríkjum verið frestað til 1. janúar 2009.

Í því felst að fram til 1. janúar 2009, þurfa launþegar frá Búlgaríu og Rúmeníu áfram atvinnu- og dvalarleyfi hér á landi sem og aðstandendur þeirra. Umsóknir um atvinnu- og dvalarleyfi fyrir ríkisborgara þessara ríkja þurfa að hafa verið samþykktar áður en viðkomandi kemur til landsins.

Um frekari umfjöllun vegna stækkunarinnar vísast til frumvarps utanríkisráðherra er varð að lögum nr. 106/2007, sjá hér eftirfarandi slóð á vef Alþingis:
http://www.althingi.is/altext/134/s/0002.html


Ríkisborgarar Rúmeníu og Búlgaríu

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.