ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Útgáfa nýrra dvalarleyfiskorta hjá Útlendingastofnun og móttaka umsókna hjá sýslumönnum.
Þann 17. ágúst nk. verður hafin framleiðsla á nýjum dvalarleyfiskortum fyrir erlenda ríkisborgara. Þetta er gert í samræmi við kröfur reglugerðar ESB nr. 1030/2002 um samræmt form dvalarleyfa.
Þetta hefur í för með sér talsverða breytingu á núverandi umsóknarferli og móttöku umsókna.
Helsta breytingin er sú að með nýjum kortum er útlendingi sem sækir um dvalarleyfi gert skylt að koma í eigin persónu með þau ferðaskilríki/vegabréf sem hann framvísaði við komu til landsins. Og láta taka mynd af sér.
Myndataka verður að fara fram til að unnt sé að gefa út kortið.
Ekki verður tekið á móti umsóknum sem sendar eru í pósti, nema frá ríkisborgurum utan EES sem verða að sækja um áður en þeir koma til landsins.
Þar af leiðandi er um tvær leiðir í umsóknarferlinu að ræða fyrir útlendinga sem eru að sækja um dvalarleyfi.
Annars vegar getur útlendingur verið staddur á landinu og þá kemur hann í byrjun umsóknarferlis og lætur taka mynd af sér ásamt því að skila inn umsókn og öðrum fylgigögnum og greiða fyrir hana.
Hins vegar eru þeir útlendingar sem ekki eru staddir á landinu þegar sótt er um og þurfa þeir þá að mæta í myndatöku eftir komu til landsins.
Umsækjandi fær þá tilkynningu frá Útlendingastofnun þess efnis og er myndatakan nauðsynleg til þess að hægt sé að gefa út leyfi hans.
Önnur mikilvæg breyting er lýtur að umsóknarferli er sú að sýslumenn munu einnig hefja móttöku umsókna um dvalarleyfi þann 24. ágúst. Þetta gerir þeim útlendingum sem búa utan höfuðborgarsvæðisins kleift að fara til sýslumanns í sínu umdæmi, skila inn umsókn um dvalarleyfi og fara þar í myndatöku vegna útgáfu dvalarleyfiskorts.
Sýslumenn í Kópavogi og Hafnarfirði ásamt Útlendingastofnun munu sjá um móttöku umsókna á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar dvalarleyfiskort er tilbúið er það sent á heimilisfang umsækjanda í pósti.

