ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Áritunardeild opnuð í Peking þann 15. júní 2007
Þann 15. júní sl. hóf íslenska sendiráðið í Peking útgáfu vegabréfsáritana, eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Danska sendiráðið í Peking mun ekki taka lengur á móti umsóknum um vegabréfsáritun fyrir Ísland. Hægt verður áfram að sækja um í dönsku ræðisskrifstofum Dana í Kína t.d. Shanghai, Guangzhou og Hong Kong eins og fram kemur á heimasíðu stofnunarinnar hér.

