ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Breytt verklag á greiðslum vegna umsókna um dvalarleyfi.

8.1.2007

Í dag mánudaginn 15. janúar hefur Útlendingastofnun tekið upp breytt verklag við gjaldtöku fyrir umsóknir um dvalarleyfi. Frá og með deginum í dag er gerð sú krafa að greiðslukvittanir fylgi öllum umsóknum um dvalarleyfi er berast Útlendingastofnun. Umsóknir sem berast Útlendingastofnun án greiðslukvittunar verða ekki teknar til afgreiðslu og endursendar til umsækjanda/umboðsmanns/atvinnurekanda. Umsóknir verða því endursendar, þrátt fyrir að greitt hafi verið fyrir þær, í þeim tilfellum sem greiðslukvittun fylgir ekki með umsókn. Ekki verður tekið á móti umsóknum í afgreiðslu Útlendingastofnunar nema greitt sé fyrir þær.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.