ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Forræðisgögn og heimild annars foreldris til búsetu barns í nýju landi.
Útlendingastofnun óskar alltaf eftir að fá frumrit af forræðisgögnum sem gefin eru út af opinberu yfirvaldi og þýdd af löggildum skjalaþýðanda, ekki er tekin gild yfirlýsing foreldra/forsjáraðila. Brýnt er að taka það fram að þrátt fyrir að báðir foreldrar/forsjáraðilar séu búsettir hér á landi eða eru bæði að sækja um dvalarleyfi ásamt barni/börnum sínum þarf að leggja fram forræðisvottorð þegar sótt er um dvalarleyfi í fyrsta sinn. Ef um sameiginlega forsjá er að ræða og einungis annað foreldri/forsjáraðili kemur með barn til búsetu á Íslandi og hitt foreldrið áfram búsett í öðru landi þarf, auk forræðisgagna, samþykki þess foreldris sem ekki hyggst búa hér á landi. Þar þarf að koma fram heimild að barnið megi ferðast og setjast að á Íslandi. Öll gögn þurfa að koma í frumriti og þýdd af löggiltum skjalaþýðanda. Sjá nánar.

