ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Fyrstu hringborðsumræður stofnana, félaga og einstaklinga hjá Útlendingastofnun þann 25. október.
Þann 25. október hélt Útlendingastofnun fyrstu hringborðsumræður stofnana, félaga og einstaklinga sem koma að innflytjendamálum. Ákveðið var að hafa þessa fundi ársfjórðungslega þar sem fjallað verður um fyrirfram ákveðin málefni hverju sinni. Skipuð var nefnd sem hefur það hlutverk að koma með tillögu að efni fyrir næsta fund.
Á þessum fyrsta fundi mættu fulltrúar frá Alþjóðahúsi, ASÍ, Vinnumálastofnun, Rauða Krossi Íslands, Samtökum Atvinnulífsins, Landlæknisembættinu, Fjölmenningasetri, Samfoki, Reykjavíkurborg, Heimili og skóla, Austurbæjarskóla, Félagsþjónustunni, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Lögreglunni í Reykjavík og Útlendingastofnun. Á fundinum voru einnig fjórir innflytjendur sem sögðu frá reynslu sinni af því að flytjast í nýtt land og hefja nýtt líf. Dómsmálaráðherra mætti einnig og kynnti fyrir fundarmönnum yfirstandandi breytingar á löggjöfinni fyrir útlendinga auk laga um ríkisborgararétt.
Fundarmenn voru sammála um að reynslan sýndi að bæta þyrfti íslenskukennslu fyrir innflytjendur þar sem tungumálið væri lykillinn að íslensku samfélagi. Allir voru sammála því að það þyrfti að auðvelda innflytjendum að læra tungumálið og hófst umræða um það hvort íslenska ríkið þyrfti að koma meira að þeim málaflokki t.d. með því að bjóða innflytjendum kennslu að kostnaðarlausu. Fram kom brýn þörf á kynningarriti fyrir innflytjendur þar sem allar helstu upplýsingar sem þessi hópur þarf á að halda til að hefja nýtt líf í nýju landi og nauðsyn þess að það yrði á nokkrum tungumálum. Þar þyrfti m.a. að koma fram réttindi og skyldur þeirra sem búa á Íslandi og hvaða þjónusta er í boði. Þrír aðilar fundarins eru langt komnir með kynningarrit sem mögulega er hægt að samræma á einhvern hátt.
Menningarlegur mismunur innflytjenda er mikill og bakgrunnur þeirra ólíkur, sem dæmi má nefna að ekki er skólaskylda í öllum löndum heims og því ekki sjálfgefið að innflytjendur viti það að öllum börnum ber skylda til að ganga í skóla hérlendis á ákveðnu aldursskeiði. Þetta bentu fagaðilar fundarins á og nauðsyn þess að foreldrar ungra innflytjenda þyrftu að koma meira inn í skólasamfélagið og kynnast því sem þar fer fram.
Ljóst þykir að allir aðilar hafa verið að vinna mikið brautryðjendastarf til að upplýsa og aðstoða innflytjendur í nýju landi en samhæfing í þessum málaflokki væri brýn og fögnuðu allir fundarmeðlimir þessu framtaki og líta björtum augum til framtíðar með samvinnu að leiðarljósi.
Næsti fundur verður haldinn hjá Fjölmenningasetri á Vestfjörðum og mun nefndin aðstoða við undirbúning.

