ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Hringborðsumræður hjá Útlendingastofnun

24.10.2006

Á morgun þann 25. október mun Útlendingastofnun halda hringborðsumræður um málefni innflytjenda á Íslandi. Boðaðir hafa verið einstaklingar sem búa yfir mikilli þekkingu og reynslu í málefnum innflytjenda hér á landi, bæði innflytjendur og aðrir sem starfa við innflytjendamál. Tilgangur þessa funda er að miðla upplýsingum á milli þessa hópa, auka samstarf og skilning sem skili sér í samhæfingu í þessum málaflokki. Tillögur sem hópurinn mun koma með verða lagðar fyrir Innflytjendaráð. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra mun flytja ávarp.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.