ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Greiðslur vegna umsókna um dvalarleyfi.

3.10.2006

Útlendingastofnun hóf gjaldtöku fyrir afgreiðslu umsókna um dvalarleyfi þann 26. júní sl. Stofnunin lýsir yfir ánægju sinni hve vel þetta fyrirkomulag hefur gengið að mestu leiti. Margir viðskiptavinir greiða afgreiðslugjaldið í gegnum netbanka. Í sumum tilfellum hafa því miður sumir gleymt að tilgreina fyrir hvaða umsóknir er verið að greiða fyrir þar sem sumir atvinnurekendur eru að greiða fyrir marga starfsmenn sína í sömu færslu. Útlendingastofnun vill beina athygli þeirra sem greiða á netinu í gegnum netbanka að um leið og greiðsla er framkvæmd sé tilgreint fyrir hvaða einstakling hver greiðsla á við og að greiðslukvittun úr netbanka fylgi með umsókn þegar hún er lögð inn. Gott er að fram komi fullt nafn viðkomandi útlendings og fæðingardagur. Ef þessar upplýsingar koma ekki fram tefur það afgreiðslu umsóknar.
Mótteknar umsóknir hjá stofnuninni sem eru ógreiddar eru ekki teknar til afgreiðslu fyrr en greiðsla hefur borist og miðast afgreiðslutími umsóknar við þann dag sem stofnunin fékk greitt fyrir hana.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.