ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Í tilefni fréttar MBL þannn 21. september 2006 “Hversu dýrt er að fæða?”

21.9.2006

Í tilefni fréttar MBL þannn 21. september 2006 “Hversu dýrt er að fæða?” vill Útlendingastofnun ítreka við viðskiptavini sína nauðsyn þess að skila inn fullnægjandi fylgigögnum með umsóknum þegar sótt er um dvalarleyfi. Ef dvalarleyfi er veitt þarf að ganga formlega frá umsókn með framvísun læknisvottorðs og tilkynningu um breytt heimilisfang frá Þjóðskrá. Fram að þeim tíma er umsækjandi ekki kominn með dvalarleyfi.
Útgáfudagur veitts leyfis miðast við þann dag sem umsækjandi hefur skilað inn læknisvottorði og tilkynnt breytt heimilisfang hjá Þjóðskrá – fyrst þá er leyfi gefið formlega út og Þjóðskrá er heimilt að skrá viðkomandi á þjóðskrá með lögheimili á Íslandi.

Útlendingastofnun hefur auglýstan 90 daga afgreiðslutíma umsókna fyrir ríkisborgara utan EES. Einnig kemur fram á heimasíðu stofnunarinnar að auglýstur afgreiðslutími miðist við að fullnægjandi gögn hafi borist með umsókn. Vert er því að benda á að ef fullnægjandi gögn berast ekki með umsókn dregst afgreiðslutíminn sem því nemur.
Að lokum við Útlendingastofnun enn ítreka nauðsyn þess að umsækjendur lesi allar leiðbeiningar er varða umsóknir á heimasíðu stofnunarinnar áður en umsókn er lögð inn. Stofnunin hefur einnig fyrirspurnarnetfang dvalarleyfi@utl.is.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.