ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Töluverð aukning hefur orðið á útgefnum dvalarleyfum milli ára.
Töluverð aukning hefur orðið á útgefnum dvalarleyfum milli ára fyrir ríkisborgara utan EES svæðisins ef skoðaðar eru tölur milli ára eins og sjá má á mynd 1 hér fyrir neðan.. Hlutfallsleg aukning á þessu tímabili milli ára er um 40%.
Athygli vekur að fjöldi námsmannaleyfa sem gefin hafa verið út hafa nánast staðið í stað milli ára þannig að hlutfallslega hefur þeim fækkað, ef litið er á heildartölur.
Mesta aukning innan aðstandendaleyfa er að finna í þeim tegundum leyfa þar sem verið er að sækja um á grundvelli hjúskapar. Á þessu tímabili árið 2005 voru gefin út 195 dvalarleyfi árið 2005 handa mökum íslenskra ríkisborgara miðað við 320 í ár, eða rúmlega 64% aukning á milli ára. Ef skoðað er dvalarleyfi fyrir maka erlendra ríkisborgara voru 88 leyfi gefin út árið 2005 miðað við 111 í ár eða um 26% aukning.
Stofnunin telur að almenn aukning á útgáfu dvalarleyfa fyrir ríkisborgara utan EES stafi af mikilli eftirspurn eftir erlendu starfsfólki og vegur þar mest stóriðjuframkvæmdirnar

Útgefin dvalarleyfi ríkisborgara utan EES. Frá 1. janúar til 1.september 2006
miðað við sama tímabil og í fyrra.

