ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Dvalarleyfi fyrir börn yngri en 18 ára.
Börn yngri en 18 ára þurfa dvalarleyfi hér á landi, á sama hátt og fullorðnir. Nauðsynlegt er því að sækja um dvalarleyfi fyrir börn yngri en 18 ára, en hafa ber í huga að þau geta að jafnaði einungis fengið dvalarleyfi í tengslum við dvalarleyfi forsjáraðila. Með umsókn barns um dvalarleyfi þarf því m.a. að leggja fram forsjárgögn/skilnaðargögn/dánarvottorð eftir því sem við á, til staðfestingar á formlegri forsjá barnsins. Ef um sameiginlegt forræði foreldra barns er að ræða ber að leggja fram vottaða yfirlýsingu þess foreldris sem ekki er búsett/statt á landinu að það sé samþykkt því að barnið dveljist á landinu, í frumriti. Dvalarleyfi fyrir börn er að jafnaði gefið út til eins árs í senn, en þó aldrei til lengri tíma en dvalarleyfi forsjáraðila. Sjá nánari leiðbeiningar hér.

