ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR
Endurnýjun dvalarleyfa
Sú lagalega skylda hvílir á útlendingi, skv. 14. gr. laga um útlendinga og 41. gr. reglugerðar um útlendinga, að sjá til þess að endurnýja dvalarleyfi sitt þegar veittur dvalarleyfistími er útrunninn og skal umsókn um endurnýjun lögð fram a.m.k. mánuði áður en leyfið fellur úr gildi. Það er því ljóst að það er á ábyrgð leyfishafa að fylgjast með gildistíma dvalarleyfis síns og að sækja um endurnýjun dvalarleyfis síns, a.m.k. mánuði áður en leyfi hans fellur úr gildi, sbr. fyrrnefnd lagaákvæði. Ef ekki er sótt um endurnýjun á dvalarleyfi a.m.k. mánuði áður en fyrra leyfi rennur úr gildi getur umsækjandi þurft að yfirgefa landið meðan á vinnslu umsóknar hans stendur. Gildistími dvalarleyfis kemur fram á dvalarleyfismiða leyfishafa.
Vill Útlendingastofnun því benda öllum útlendingum á að sækja um endurnýjun dvalarleyfis síns a.m.k. mánuði áður en núverandi leyfi rennur út, hafi útlendingur hug á að dveljast lengur hér á landi. Einnig vill Útlendingastofnun ítreka að það er á ábyrgð leyfishafa að sækja um endurnýjun dvalarleyfis, en ekki atvinnurekanda.

