ÝMIS FRÓÐLEIKUR/FRÉTTIR

Aukning í útgáfu dvalarleyfa

7.4.2006

Aftur á móti hefur verið stöðug aukning í útgefnum dvalarleyfum frá árinu 2003, en árið 2004 voru gefin út 6042 dvalarleyfi og á árinu 2005 voru gefin út 9331 dvalarleyfi, sem er 54% aukning á milli ára. Þessi mikla aukning sést einnig þegar litið er móttekinna umsókna um dvalarleyfi. Árið 2004 bárust 8616 umsóknir um dvalarleyfi, en árið 2005 bárust samtals 12620 umsóknir um dvalarleyfi. Er það 46% aukning á milli ára

Útlendingastofnun hefur þegar móttekið 4180 umsóknir um dvalarleyfi á fyrstu þremur mánuðum ársins 2006. Gefur það til kynna að umsóknum um dvalarleyfi eigi enn eftir að fjölga á þessu ári. Eftirtektarvert er að langmesta fjölgunin hefur verið á útgáfu dvalarleyfa vegna atvinnuþátttöku, en sú þróun er í samræmi við þróun á íslenskum vinnumarkaði í dag.

Sjá upplýsingar um tölfræði hér.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Leturstærð:


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.